Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Lyfja­sala Al­vot­ech dróst saman um 53%

Read Full Article →

Tekjur Al­vot­ech af vöru- og þjónustusölu drógust saman um 53% á fyrsta árs­fjórðungi og námu 51,2 milljónum dala. Heildar­tekjur félagsins lækkuðu þó minna, eða um 20%, þar sem tekjur af leyfis­samningum og áfanga­greiðslum jukust veru­lega á móti. Heildar­tekjur Al­vot­ech námu 105,9 milljónum dala á fyrsta árs­fjórðungi, saman­borið við 132,8 milljónir dala á sama tíma í fyrra. Aðlöguð EBITDA nam 24,4 milljónum dala og jókst um 19% milli ára. Fram­legð af heildar­tekjum var 57%, saman­borið við 51% á fyrsta fjórðungi síðasta árs. Af­koman markast hins vegar af miklum sam­drætti í lyfjasölu félagsins. Vöru- og þjónustu­tekjur, sem endur­spegla fyrst og fremst sölu á lyfjum félagsins og tengdri þjónustu, námu 51,2 milljónum dala á fjórðungnum. Á sama tíma í fyrra námu þær 109,9 milljónum dala. Á móti jukust leyfis- og aðrar tekjur úr 22,9 milljónum dala í 54,7 milljónir dala. Tekju­sam­setningin á fjórðungnum var því gjör­breytt frá fyrra ári. Í upp­gjörs­gögnum Al­vot­ech kemur fram að fyrsti fjórðungur síðasta árs hafi notið góðs af miklum vöru­tekjum í tengslum við markaðs­setningu hliðstæðu félagsins við Stelara í Bandaríkjunum. Á fyrsta fjórðungi þessa árs komu vöru­tekjur félagsins einkum frá áfram­haldandi sölu hliðstæðna við Humira og Stelara. Þá fóru þrjár ný­lega samþykktar hliðstæður, við Proli­a/Xgeva, Simponi og Ey­lea, að skila tekjum, en þær dugðu ekki til að vega upp á móti sam­drættinum frá sterku saman­burðartíma­bili í fyrra. Lisa Gra­ver, for­stjóri Al­vot­ech, segir í til­kynningu félagsins að heildar­tekjur og EBITDA-fram­legð á fyrsta árs­fjórðungi endur­spegli að hægt hafi verið á fram­leiðslu á meðan unnið var að úr­bótum á fram­leiðslu­aðstöðu félagsins. Hún segir að Al­vot­ech búist við því að tekjur af vörusölu aukist þegar fram­leiðslan kemst aftur í eðli­legt horf. „Undan­farna mánuði höfum við endur­bætt fjölmörg gæða- og fram­leiðslu­kerfi félagsins. Við tókum meðvitaða ákvörðun um að eyða meiri tíma í þessar að­gerðir til að draga enn frekar úr þeirri áhættu að út­tektir á fram­leiðslu­aðstöðunni hafi áhrif á reksturinn,“ segir Gra­ver í til­kynningunni. „Á viðskiptahliðinni verðum við vör við mikla undirliggjandi eftirspurn eftir öllum hliðstæðum okkar sem eru á markaði, þar á meðal fer eftirspurn enn vaxandi eftir hliðstæðunni við Humira í Bandaríkjunum. Við náðum einnig mikilvægum áföngum í lyfjaþróun, þar á meðal lögðum við inn umsókn um markaðsleyfi í Evrópu fyrir fyrirhugaða hliðstæðu við Entyvio og tókum inn fyrstu sjúklingana í lykilrannsókn á klínískri virkni og öryggi fyrirhugaðrar hliðstæðu við Eylea í háum styrk “ segir Gra­ver í til­kynningunni. Hún segir jafn­framt að félagið leggi ríka áherslu á að senda að nýju inn um­sóknir um markaðs­leyfi til bandaríska lyfja­eftir­litsins, FDA, á öðrum árs­fjórðungi. Að­gerðirnar sem ráðist hafi verið í síðan á síðasta ári geri um­sóknirnar traustari og styrki jafn­framt fram­leiðslu- og þróunar­starf­semi félagsins til lengri tíma. Al­vot­ech skilaði 1 milljón dala hagnaði á fyrsta árs­fjórðungi, saman­borið við 109,7 milljóna dala hagnað á sama fjórðungi í fyrra. Munurinn skýrist að stórum hluta af fjár­magns­liðum. Fjár­muna­tekjur námu 33,4 milljónum dala á fjórðungnum, saman­borið við 126,3 milljónir dala á sama tíma í fyrra, en slíkar tekjur ráðast meðal annars af gang­virðis­breytingum af­leiðu­skuld­bindinga. Fjár­mögnunar­kostnaður félagsins nam 40,8 milljónum dala og hækkaði úr 35,5 milljónum dala á sama tíma í fyrra. Í upp­gjörs­gögnum Al­vot­ech segir að hækkunin skýrist einkum af meiri stað­greiddum vaxta­kostnaði eftir að félagið fór úr vöxtum sem bættust við höfuðstól lána yfir í stað­greidda vexti. Greiddir vextir námu 35 milljónum dala á fyrsta fjórðungi, saman­borið við 4,8 milljónir dala á sama tíma í fyrra. Hand­bært fé félagsins lækkaði úr 172,4 milljónum dala í árs­lok í 63,8 milljónir dala í lok mars. Rekstrar­sjóð­streymi fyrir greidda vexti og skatta var neikvætt um 25,2 milljónir dala. Sjóð­streymið litast meðal annars af veltu­fjár­bindingu. Birgðir Al­vot­ech hækkuðu úr 220,1 milljón dala í árs­lok í 228 milljónir dala í lok mars. Í sjóð­streymi kemur fram að birgða­upp­bygging hafði 11 milljóna dala neikvæð áhrif á rekstrar­sjóð­streymi á fjórðungnum, sam­hliða lækkun við­skipta­skulda og samnings­skulda. Nettó­skuldir Al­vot­ech námu 1,39 milljörðum dala í lok mars, saman­borið við 1,02 milljarða dala á sama tíma í fyrra. Skulda­hlut­fallið var 9,9 sinnum miðað við aðlagaða EBITDA síðustu tólf mánaða. Félagið heldur engu að síður óbreyttri af­komu­spá fyrir árið 2026. Al­vot­ech gerir ráð fyrir að heildar­tekjur ársins verði á bilinu 650 til 700 milljónir dala og að aðlöguð EBITDA verði 180 til 220 milljónir dala. Neðri mörk spárinnar gera ráð fyrir engum tekjum af nýjum lyfjum í Bandaríkjunum á árinu. Eftir lok fjórðungsins til­kynnti Al­vot­ech um sam­starfs­samning við FUJIFILM Biot­echnologies sem tryggir félaginu að­gang að fram­leiðslu­getu í Bandaríkjunum. Þá lagði félagið inn um­sókn um markaðs­leyfi í Evrópu fyrir fyrir­hugaðar hliðstæður við En­ty­vio og hóf klíníska rannsókn á fyrir­hugaðri hliðstæðu við Ey­lea í háum styrk.

Share this article