Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Breytingar litað afkomuna

Read Full Article →

Tekjur Al­vot­ech af vöru- og þjónustusölu drógust saman um 53% á fyrsta árs­fjórðungi og námu 51,2 milljónum dala. Heildar­tekjur félagsins lækkuðu þó minna, eða um 20%, þar sem tekjur af leyfis­samningum og áfanga­greiðslum jukust veru­lega á móti. Heildartekjur Al­vot­ech námu 105,9 milljónum dala á fyrsta árs­fjórðungi, saman­borið við 132,8 milljónir dala á sama tíma í fyrra. Aðlöguð EBITDA nam 24,4 milljónum dala og jókst um 19% milli ára. Fram­legð af heildar­tekjum var 57%, saman­borið við 51% á fyrsta fjórðungi síðasta árs. Vöru- og þjónustu­tekjur, sem endur­spegla fyrst og fremst sölu á lyfjum félagsins og tengdri þjónustu, námu 51,2 milljónum dala á fjórðungnum. Á sama tíma í fyrra námu þær 109,9 milljónum dala. Á móti jukust leyfis- og aðrar tekjur úr 22,9 milljónum dala í 54,7 milljónir dala. Í upp­gjörs­gögnum Al­vot­ech kom fram að fyrsti fjórðungur síðasta árs hefði notið góðs af miklum vörutekjum í tengslum við markaðs­setningu hliðstæðu félagsins við Stelara í Bandaríkjunum. Afkoma fyrsta ársfjórðungs var í samræmi við væntingar Róberts Wessman, stofnanda og stjórnarformanns Alvotech. „Þriðji og fjórði ársfjórðungur síðasta árs og fyrsti og annar ársfjórðungur á þessu ári endurspegla síðustu tíu mánuði þar sem við höfum verið að undirbúa fyrrnefndar um­sóknir til FDA. Við fórum í gegnum vel yfir tvö hundruð breytingar á ferlum og ýmsu öðru sem viðkemur starfseminni í kjölfar þess að FDA gerði athugasemdir við framleiðsluaðstöðuna í Vatnsmýri og samþykkti í kjölfar þess ekki umsókn okkar um markaðsleyfi fyrir þrjár hlið­stæður í lok síðasta árs. Þessar breytingar, sem voru flest allar smávægilegar, kölluðu á að við hægðum á framleiðslunni og stöðvuðum hana ­alveg um skeið, enda ekki hægt að framkvæma margar þeirra meðan á framleiðslu stendur. Einnig kölluðu athugasemdir úr reglubundinni úttekt FDA á framleiðsluaðstöðu okkar í Reykjavík, sem hófst í lok ­apríl, á breytingar sem voru ekki veigamiklar. Þetta ­hefur litað síðustu þrjá ársfjórðunga og ég vænti þess að það sama eigi við um annan ársfjórðung. Aftur á móti hefur verk­smiðjan verið keyrð á fullum af­köstum síðustu ­vikur, þannig að við reiknum með auknum umsvifum í vörusölu á þriðja ársfjórðungi, einnig þeim fjórða og sömuleiðis inn í árið 2027.“ Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið viðtalið í heild hér .

Share this article