Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Markvörður skoraði: Fyrsta sinn í 16 ár og fjórða skiptið í sögunni

Read Full Article →

Aron Birkir Stefánsson varð í dag fyrsti markvörðurinn til að skora í efstu deild karla í fótbolta í 16 ár. Aron er markvörður Þórs og skoraði þriðja mark Þórsara í 3-3 jafntefli gegn KR í Bestu deildinni. Hann tók aukaspyrnu frá sínum eigin vallarhelmingi sem vindurinn greip og boltinn sveif í markið. Víðir Sigurðsson tók saman upplýsingar um markmenn sem hafa skorað í efstu deild árið 2010 fyrir Morgunblaðið. Hér má lesa grein hans. Þessir hafa skorað í efstu deild: Aron Birkir Stefánsson - fyrir Þór gegn KR. 2. júlí 2026. Úr aukaspyrnu. Albert Sævarsson - f yrir ÍBV gegn Selfossi. 16. september 2010. Úr vítaspyrnu. Jón Þorbjörnsson - fyrir ÍA gegn Víkingi. 14. júní 1978. Úr útsparki. Þorsteinn Ólafsson - fyrir Keflavík gegn ÍA. 28. ágúst 1976. Úr vítaspyrnu. Aron er því aðeins annar markvörðurinn til að koma boltanum í net andstæðinganna án þess að skora úr vítaspyrnu.

Share this article