Japanska stálfyrirtækið Nippon Steel hefur tilkynnt áform um umfangsmiklar endurbætur á Mon Valley Works, elstu stáliðju U.S. Steel sem er staðsett skammt frá Pittsburgh í Pennsylvaníu. Á vef WSJ segir að Nippon muni fjárfesta 2 til 2,5 milljarða dala í verkefninu og er áætlað að framkvæmdir standi yfir næstu þrjú árin. U.S. Steel tilkynnti fyrir tveimur árum að það hefði ekki efni á að halda rekstri stáliðjunnar á lífi en með nýjum eigendum er útlit fyrir að starfsemi verksmiðjunnar geti haldið áfram í nokkra áratugi. Sjá einnig Biden stöðvar sölu á US Steel Verkefnið, sem felur meðal annars í sér að skipta út 88 ára gamalli heitvalslínu, mun líklega skapa allt að 6.000 störf fyrir íbúa í Pennsylvaníu. Nippon Steel keypti U.S. Steel á síðasta ári fyrir 14,1 milljarð dala en sala fyrirtækisins var mjög umdeild. Joe Biden, þáverandi forseti Bandaríkjanna, var mótfallinn sölunni af þjóðaröryggisástæðum en Donald Trump samþykkti söluna gegn því skilyrði að Nippon Steel myndi auka fjárfestingar sínar í verksmiðjum U.S. Steel upp í 11 milljarða dala.