Heimar fasteignafélag hagnaðist um 2.266 milljónir króna á fyrsta ársfjórðungi, samanborið við 1.383 milljóna króna hagnað á sama tímabili í fyrra. Arðsemi eiginfjár var 11,7%. Heimar birtu uppgjör eftir lokun Kauphallarinnar í dag. Rekstrartekjur fasteignafélagsins námu 4,3 milljörðum króna á fyrstu þremur mánuðum ársins og leigutekjur hækkuðu um 18,1% milli ára. Það samsvarar 13,7% hækkun umfram verðlag á sama tíma. Raunvöxtur leigutekna á sambærilegu eignasafni milli ára er 2,8%. Rekstrarhagnaður félagsins fyrir matsbreytingu nam rúmum 2,8 milljörðum króna og hækkaði um 16,5% milli ára. Matsbreyting fjárfestingaeigna nam 4,3 milljörðum króna á fyrstu þremur mánuðum ársins. Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Heima verðlagsþróun ársins hafi verið umfram forsendur afkomuspár. Vænta megi að tekjur og rekstrarhagnaður verði við efri mörk gildandi afkomuspár fyrir árið 2026. „Rekstur Heima er sterkur og fjárfestingar félagsins á árinu 2025 eru farnar að skila sér í auknum tekjuvexti,” segir Halldór Benjamín. „Kaup á Grósku og Exeter hafa styrkt eignasafn félagsins á kjarnasvæðum Heima og markviss uppbygging í Smáralind hefur aukið aðdráttarafl hennar og styrkt stöðu hennar sem leiðandi áfangastaðar fyrir verslun, þjónustu og afþreyingu. Gestafjöldi Smáralindar jókst um 20% milli ára á tímabilinu.” Sjá einnig Gestum Smáralindar fjölgar um 20% með nýrri mathöll