Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hagnast um 4,6 milljarða og upp­færa af­komu­spá

Read Full Article →

Heimar fasteignafélag hagnaðist um 4.568 milljónir króna á fyrstu sex mánuðum ársins, samanborið við 1.114 milljóna króna hagnað á sama tímabili í fyrra. Arðsemi eiginfjár var 11,8%. Í uppgjöri félagsins fyrir annan ársfjórðung kemur fram að hagnaður hafi numið 2.301 milljón króna á tímabilinu, samanborið við 2.266 milljónir á fyrsta fjórðungi. Rekstrartekjur á fjórðungnum námu 4,4 milljörðum króna og rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu tæpum 3 milljörðum. Rekstrartekjur Heima námu 8,7 milljörðum króna á fyrri árshelmingi og leigutekjur 8,3 milljörðum. Leigutekjur jukust um 16,1% milli ára, sem félagið segir jafngilda 11,3% aukningu umfram verðlag. Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir, EBITDA, nam 5,8 milljörðum króna og jókst um 14,6% frá sama tímabili í fyrra. Matsbreyting fjárfestingareigna nam 7,7 milljörðum króna, samanborið við 1,4 milljarða á sama tímabili í fyrra. Aukin matsbreyting skýrist einkum af hækkun verðlags. Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Heima, segir rekstur félagsins stöðugan og tekjugrunninn traustan. Útleiguhlutfall sé áfram hátt, eða 96%, og 42% leigutekna komi frá opinberum aðilum og skráðum félögum. „Áhersla á uppbyggingu og þróun kjarnasvæða heldur áfram að styrkja eignasafnið og tekjugrunn félagsins til lengri tíma.“ Á öðrum ársfjórðungi voru undirritaðir 26 leigusamningar fyrir rúmlega 9.000 fermetra. Þá bættist Silfursmári 12 við eignasafnið, um 2.700 fermetra skrifstofu- og atvinnuhúsnæði sem er að fullu útleigt. Gestafjöldi Smáralindar jókst um 27% milli ára á öðrum ársfjórðungi og velta rekstraraðila um 21%. Til samanburðar nam aukningin 20% og 18% á fyrsta ársfjórðungi. Heimar hafa uppfært afkomuspá sína fyrir árið með tilliti til verðlags og þróunar leigutekna. Nú er gert ráð fyrir leigutekjum á bilinu 16,85 til 17,2 milljarðar króna og EBITDA á bilinu 12,05 til 12,4 milljarðar.

Share this article