Steingrímur Halldór Pétursson, stjórnarmaður hjá Heimum, hefur keypt 1,5 milljónir hluta í félaginu fyrir samtals 51 milljón króna, samkvæmt tilkynningu félagsins til Kauphallarinnar. Viðskiptin fóru fram á genginu 34 krónur á hlut sem er 0,59% yfir dagslokagengi félagsins á föstudag sem var 33,8 krónur á hlut. Steingrímur var kjörinn í stjórn Heima á aðalfundi félagsins í vor og er framkvæmdastjóri Túnsteins ehf. og K&B ehf., auk þess að vera stjórnarmaður í Öldu Seafood Holding B.V. Túnsteinn, fjárfestingarfélag í eigu Baldvins Þorsteinssonar, er áttundi stærsti hluthafi Heima með 3,5% hlut. Sjá einnig Birgir Már og Steingrímur tilnefndir í stjórn Heima