Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Tómas kaupir í Heimum fyrir 73 milljónir

Read Full Article →

Tómas Kristjánsson, stjórnarformaður fasteignafélagsins Heima, keypti í morgun hlutabréf í félaginu fyrir 72,8 milljónir króna. Hann keypti 2 milljónir hluta á genginu 36,4 krónur á hlut, að því er kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar. Tómas hefur setið í stjórn Heima frá árinu 2014 og verið stjórnarformaður frá árinu 2017. Hann situr einnig í Klasa ehf. og Smárabyggðar ehf., hlutdeildarfélögum Heima. Fasteignafélagið á 33,3% hlut í Klasa og 20,6% hult í Smárabyggð. Tómas er níundi stærsti hluthafi Heima með 3,2% hlut í gegnum fjárfestingarfélagið Siglu ehf. Sigla á 65 milljónir hluta í Heimum sem eru um 2,37 milljarðar króna að markaðsvirði miðað við núverandi 36,4 króna markaðsgengi. Tómas er fyrrverandi framkvæmdastjóri áhættustýringar, fjárstýringar og reikningshalds hjá Fjárfestingarbanka atvinnulífsins (FBA), síðar Íslandsbanka/Glitni banka og yfirmaður lánaeftirlits Iðnlánasjóðs. Sjá einnig Heimar hagnast um 8,4 milljarða Tómas er annar stjórnarmaður Heima sem hefur keypt hlutabréf í fasteignafélaginu frá því að það birti ársuppgjör þann 12. febrúar síðastliðinn. Bryndís Hrafnkelsdóttir keypti hlutabréf í félaginu fyrir 1,7 milljónir króna um miðjan febrúar. Bryndís mun færa sig úr aðalstjórn félagsins í varastjórn í kjölfar aðalfundar þess á mánudaginn, 9. mars. Sjá einnig Bryndís kaupir í Heimum fyrir 1,7 milljónir

Share this article