Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Ögmundur í landsliðshópi Arnars

Read Full Article →

Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta opinberaði í dag landsliðshópana sem mæta Argentínu og Japan í vináttuleikjum um mánaðamótin. Ísland mæti Japan 31. maí í Tókýó svo Argentínu í Bandaríkjunum 10. júní. Þar sem leikurinn við Japan er utan hefðbundins landsleikjaglugga valdi Arnar tvo landsliðshópa og það vekur athygli að Ögmundur Kristinsson er í hópnum fyrir leikinn við Japan. Ögmundur er samningsbundinn Val en hefur ekki verið í leikmannahóp liðsins það sem af er leiktíð og virðist ekki eiga sér framtíð á Hlíðarenda. Landsliðshópur Íslands gegn Japan Hákon Rafn Valdimarsson - Brentford F.C. - 21 leikur Ögmundur Kristinsson - Valur - 19 leikir Alfons Sampsted - Go Ahead Eagles - 23 leikir Dagur Dan Þórhallsson - CF Montreal - 8 leikir Hjörtur Hermannsson - Volos F.C. - 30 leikir, 1 mark Sverrir Ingi Ingason - Panathinaikos F.C. - 66 leikir, 4 mörk Daníel Leó Grétarsson - Sonderjyske Fodbold - 29 leikir Hörður Björgvin Magnússon - Levadiakos - 52 leikir, 2 mörk Logi Tómasson - Samsunspor - 14 leikir, 1 mark Willum Þór Willumsson - NEC Nijmegen - 18 leikir Andri Fannar Baldursson - Kasimpasa S.K. - 12 leikir Gísli Gottskálk Þórðarson - Lech Poznan - 2 leikir Aron Einar Gunnarsson - Al-Gharafa - 108 leikir, 5 mörk Mikael Egill Ellertsson - Genoa CFC - 29 leikir, 2 mörk Kristian Nökkvi Hlynsson - FC Twente - 11 leikir, 2 mörk Brynjólfur Andersen Willumsson - FC Groningen - 9 leikir, 1 mark Stefán Ingi Sigurðarson - Go Ahead Eagles Viktor Bjarki Daðason - FC Köbenhavn Benoný Breki Andrésson - Stockport County F.C. Arnar sat fyrir svörum á blaðamannafundi í höfuðstöðvum KSÍ nú áðan og rökstuddi val sitt á Ögmundi þannig að það hefði verið vandamál með að velja markverði sem ekki væru við störf með félagsliðum sínum þegar leikurinn við Japan yrði. Ögmundur jákvæður og þakklátur „Nafn Ögmundar kom fljótt upp. Hann var hrikalega jákvæður, sem ég er mjög þakklátur fyrir. Ég vænti þess að hann gefi mikið af sér og komi inn með sína reynslu og nái að halda svona aðstæður,“ sagði Arnar meðal annars en Ögmundur spilaði 19 A-landsleiki fyrir Ísland á árunum 2014-2021 og var meðal annars í EM hópnum í Frakklandi árið 2016. Leikmannahópur Íslands gegn Argentínu Elías Rafn Ólafsson - FC Midtjylland - 14 leikir Hákon Rafn Valdimarsson - Brentford F.C. - 21 leikur Anton Ari Einarsson - Breiðablik - 3 leikir Guðlaugur Victor Pálsson - Horsens - 57 leikir, 5 mörk Dagur Dan Þórhallsson - CF Montreal - 8 leikir Hjörtur Hermannsson - Volos F.C. - 30 leikir, 1 mark Hörður Björgvin Magnússon - Levadiakos - 52 leikir, 2 mörk Daníel Leó Grétarsson - Sonderjyske Fodbold - 29 leikir Mikael Egill Ellertsson - Genoa CFC - 29 leikir, 2 mörk Logi Tómasson - Samsunspor - 14 leikir, 1 mark Andri Fannar Baldursson - Kasimpasa - 12 leikir Hákon Arnar Haraldsson - LOSC Lille - 30 leikir, 3 mörk Gísli Gottskálk Þórðarson - Lech Poznan - 2 leikir Stefán Teitur Þórðarson - Hannover 96 - 36 leikir, 1 mark Ísak Bergmann Jóhannesson - 1. FC Köln - 43 leikir, 6 mörk Gylfi Þór Sigurðsson - Víkingur R. - 85 leikir, 28 mörk Kristall Máni Ingason - SK Brann - 8 leikir Arnór Sigurðsson - Malmö FF - 35 leikir, 2 mörk Kristian Nökkvi Hlynsson - FC Twente - 11 leikir, 2 mörk Jón Dagur Þorsteinsson - SK Brann - 54 leikir, 6 mörk Albert Guðmundsson - ACF Fiorentina - 46 leikir, 14 mörk Orri Steinn Óskarsson - Real Sociedad - 17 leikir, 9 mörk Daníel Tristan Guðjohnsen - Malmö FF - 5 leikir Hákon Rafn Valdimarsson, Dagur Dan Þórhallsson, Hjörtur Hermannsson, Daníel Leó Grétarsson, Hörður Björgvin Magnússon, Logi Tómasson, Andri Fannar Baldursson, Gísli Gottskálk Þórðarson og Kristian Nökkvi Hlynsson eru valdir í báða landsliðshópana.

Share this article