Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Japanar neituðu að gefast upp

Read Full Article →

Japan og Holland gerðu 2-2 jafntefli í fyrsta leik í F-riðli á HM karla í fótbolta. Markalaust var í hálfleik en Hollendingar komust yfir í tvígang í seinni hálfleik. Japanar gáfust aldrei upp og jöfnuðu metin tvisvar. Hér má sjá mörkin. Bæði lið geta gengið ágætlega sátt frá borði en Hollendingar eru þó eflaust ögn óánægðari með niðurstöðuna, þar sem Japan jafnaði undir lok leiks. Pressan var svo mikil að eitthvað varð undan að láta. Það er eins og liðin sætti sig frekar við stigið í riðlakeppni þar sem þrjú lið fara áfram. Tap setur þau í verri stöðu. Þróunin var svipuð í leik Brasilíu og Marokkós kvöldið áður. Fyrri hálfleikur var afar bragðdaufur en það kviknaði líf í seinni hálfleik. Virgil átti frábært skallamark í upphafi hálfleiks. Nakamura jafnaði með skoti úr nær vonlausri stöðu í gegnum þvögu. Summerville kom Hollendingum aftur yfir með skoti í stöngina og inn. Japanar sóttu án afláts og fastur skalli Kamada fór í netið. Liðin eru jöfn með eitt stig hvort. Svíþjóð og Túnis mætast klukkan tvö í nótt.

Share this article