Eitt þekktasta hús miðborgarinnar, Kirkjuhúsið við Laugaveg 31, hefur verið sett á sölu eftir umfangsmiklar endurbætur síðustu ára. Eigendur segja stefnuna hafa verið að kaupa eldri hús, gera þau upp og selja í kjölfarið. Fasteignin við Laugaveg 31, betur þekkt sem Kirkjuhúsið, hefur verið auglýst til sölu eftir umfangsmikla uppbyggingu og endurnýjun síðustu ára. Kirkjuhúsið við Laugaveg 31. © Aðsend mynd (AÐSEND) Húsið hefur lengi verið eitt af kennileitum miðborgarinnar og gegnt áberandi hlutverki í verslunar- og menningarlífi Laugavegar. Rúnar Ómarsson, talsmaður eigenda, segir ástæðu sölunnar vera þá stefnu eigenda að kaupa eldri hús, gera þau upp og selja í framhaldinu. Byggt sem stórverslun á millistríðsárunum Kirkjuhúsið var reist á árunum 1928 til 1930 af kaupmanninum Marteini Einarssyni, sem rak þar stórverslun. Húsið þótti á sínum tíma afar glæsilegt og var byggt af miklum myndarbrag. Marteinn bjó jafnframt með fjölskyldu sinni í húsinu samhliða rekstrinum og enn í dag er möguleiki á að innrétta íbúð á efstu hæð eignarinnar. Kirkjuhúsið við Laugaveg 31. © Aðsend mynd (AÐSEND) Árið 1994 komst fasteignin í eigu Kristnisjóðs og var Biskupsstofa þjóðkirkjunnar með aðsetur þar í tæpa þrjá áratugi. Skrifstofur eru á efri hæð hússins. Færðu húsið nær upprunalegu útliti Nýir eigendur keyptu húsið árið 2020 og hófu í kjölfarið umfangsmiklar framkvæmdir með það markmið að færa eignina nær upprunalegu útliti hennar, samhliða nútímavæðingu innra skipulags. Samhliða uppbyggingunni réðst Reykjavíkurborg ásamt Veitum í endurnýjun Vatnsstígs við húsið, framkvæmdir sem nú er lokið. Skrifstofurrýmið er stórt og rúmgott. Verslunarrýmið á neðri hæðinni er einstaklega fallegt. © Aðsend mynd (AÐSEND) Árið 2023 opnaði Rammagerðin svokallaða flaggskipsverslun sína í húsinu, sem markaði nýjan kafla í sögu eignarinnar og styrkti stöðu hennar sem eins af áberandi húsum verslunargötunnar. Skrifstofur eru nú á efri hæðum hússins. Samkvæmt auglýsingu er óskað eftir tilboðum í eignina 22. maí næstkomandi. Fyrirtækjasalan Suðurver sér um söluferlið og er áhugasömum bent á vefsíðuna www.fyrirtaeki.is Kirkjuhúsið við Laugaveg 31. Kirkjuhúsið við Laugaveg 31.