Aron Sigurðarson skoraði þrennu í 3-5 sigri KR gegn KA í Bestu deild karla í dag. Þar með er Aron kominn með 20 mörk í 20 leikjum í deildinni í ár. Benóný Breki Andrésson á markametið í efstu deild karla í fótbolta eins og er. Hann skoraði 21 mark fyrir KR tímabilið 2025. Sú umræða hefur þó verið uppi að hann hafi ekki raunverulega slegið markametið sem sett var í 22 leikja deild. Þeir eru alls fimm sem höfðu skorað 19 mörk í „hefðbundinni“ deildarkeppni, það er að segja án tvískiptingar. Fjórir þeirra gerðu það í 18 leikja deild og Andri Rúnar í 22 leikja deild. Þeir skoruðu 19 mörk í hefðbundinni deildarkeppni Pétur Pétursson (ÍA) – 1978 Guðmundur Torfason (Fram) – 1986 Þórður Guðjónsson (ÍA) – 1993 Tryggvi Guðmundsson (ÍBV) – 1997 Andri Rúnar Bjarnason (Grindavík) – 2017 Ætlar sér gullskóinn Aron hefur verið óhræddur við að tala um að hann ætli sér gullskóinn í sumar. „Ég er að fara vinna þennan gullskó og ég er að fara slá markametið. Þess vegna er maður kannski extra súr að vera tekinn út af í dag en í mínum haus er ég með þetta bæði, búinn að vinna bæði gullskóinn og slá markametið,“ sagði Aron í viðtali við Vísi fyrr í sumar. Metið hans Benónýs Breka Benóný Breki skoraði 10 mörk í 21 leik fyrir tvískiptingu deildarinnar. Hann skoraði svo 10 mörk í 5 leikjum í neðri hluta Bestu deildar, þar af fimm í lokaleiknum þar sem KR felldi HK. Benóný skoraði því 21 mark í 26 leik, eða 0,8 mörk í leik. Aron er sem stendur með 1,1 mark í leik að meðaltali. Að öllum líkindum á hann eftir að leika sjö leiki í viðbót. Hann á tvo leiki eftir áður en kemur að tvískiptingu deildarinnar. KR verður þar í efri hlutanum. Aron vantar eitt mark til að jafna markametið og tvö mörk í leikjunum sjö til að toppa Benóný. Ef hann heldur áfram að skora með sama hætti endar hann í 28 mörkum. Svona var leikurinn – fyrsti leikur Eiðs Smára Fyrsta mark Arons kom úr aukaspyrnu sem hann setti yfir vegginn og Ívar Arnbro Þórhallsson náði ekki að stöðva. Annað mark hans kom með skalla á nærstöng eftir hornspyrnu Galdurs Guðmundssonar. Hallgrímur Mar minnkaði muninn með glæsilegu marki eftir langa sendingu fram. Hann sendi boltann yfir höfuð Halldórs Snæs Georgssonar sem virðist hálfblindaður af sólinni. André Römer stangaði inn hornspyrnu og jafnaði metin í 2-2. Aron fullkomnaði þrennu sína með skoti í fjærhornið við D-bogann. Fjórða mark KR var það glæsilegasta. Galdur og Aron léku vel saman úti á vinstri væng og boltinn barst til Sigurðar Breka í teignum. Sigurður snerti boltann létt aftur fyrir sig með ilinni á Orra Hrafn sem kom askvaðandi og lagði boltann í fjærhornið. Vel heyrðist í Eiði Smára Guðjohnsen á hliðarlínunni sem var að stýra KA í sínum fyrsta leik. Hann og Hallgrímur Jónasson eru báðir aðalþjálfarar. KA-menn freistuðu þess að byrja að verjast um rétt fyrir aftan miðjubogann á eigin vallarhelmingi. Þá leituðust þeir eftir að sækja hratt fram. Eiður Gauti Sæbjörnsson skoraði fimmta markið með skalla í fjærstöngina eftir fyrirgjöf Luke Rae. Kári Gautason skoraði svo sárabótarmark undir lok leiks með síðustu spyrnu leiksins. KA er sem fyrr í fallsæti. Liðið er í 11. sæti með 16 stig og getur ekki lengur komið sér í efri hluta deildarinnar fyrir tvískiptingu. Víkingur er með fimm stiga forskot á KR. KR er í öðru sæti með 43 stig og Víkingur eru í efsta sæti með 48. Víkingur mætir Val í leik sem hefst núna klukkan 19:15. Hvenær komu mörkin? 0-1 - 14' Aron Sigurðarson 0-1 - 29' Aron Sigurðarson 1-2 - Hallgrímur Mar Steingrímsson 14' 2-2 André Rømer 20' 2-3 28' Aron Sigurðarson 2-4 37' Orri Hrafn Kjartansson 2-5 49' Eiður Gauti Sæbjörnsson 3-5 90+' Kári Gautason Önnur úrslit Stjarnan 4 - 2 Þór ÍA 1 - 1 FH Keflavík 1 - 0 ÍBV