Bandarísk yfirvöld hafa ákært starfsmann Google fyrir að hafa nýtt sér trúnaðarupplýsingar úr starfi sínu til að hagnast um rúmlega 1,2 milljónir dala í gegnum veðmálamarkaðinn Polymarket. Á vef BBC segir að Michele Spagnuolo, verkfræðingur hjá Google og ítalskur ríkisborgari búsettur í Sviss, hafi verið handtekinn í gær og leiddur fyrir alríkisdómara í New York. Saksóknari í New York segir hann hafa brotið bandarísk innherjaviðskiptalög með því að nýta sér upplýsingar sem hann hafði aðgang að í gegnum starf sitt hjá tæknirisanum. Google segir að fyrirtækið vinni nú með yfirvöldum og að starfsmaðurinn hafi verið sendur í leyfi. Sjá einnig Segja tæknirisana græða á samfélagsmiðlafíkn Samkvæmt dómskjölum hagnaðist hann mest á því að hafa spáð fyrir um hvaða einstaklingar yrðu mest leituðu nöfnin á Google árið 2025. Flestir höfðu spáð að nöfn á borð við Donald Trump eða Bianca Censori væru vinsælust en Spagnuolo vissi fyrir fram að tónlistarmaðurinn D4vid yrði mest leitaða nafnið þar sem hann hafði aðgang að innri gögnum fyrirtækisins áður en þau voru birt opinberlega.