Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Persónuvernd endurgreiðir sveitarfélögum hátt í 15 milljónir

Read Full Article →

Persónuvernd hefur afturkallað eða fellt niður hluta ákvarðana sinna frá 28. nóvember 2023 vegna notkunar fimm sveitarfélaga á skýjalausn Google í grunnskólastarfi. Stofnuninni ber að endurgreiða Reykjavíkurborg, Kópavogsbæ, Hafnarfjarðarbæ, Reykjanesbæ og Garðabæ samanlagt 12,8 milljónir króna auk dráttarvaxta sem eru tæplega 1,6 milljónir. Stofnunin greiðir því alls um 14,4 milljónir. Persónuvernd féllst upphaflega á að fella niður að hluta ákvörðun sína gagnvart Reykjavíkurborg að beiðni borgarlögmanns, þar sem stofnunin taldi að á henni væru að nokkru marki hliðstæðir annmarkar og á ákvörðun sem ógilt var að hluta með dómi Hæstaréttar árið 2024. Annmarkar á ályktunum Persónuverndar Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar, bendir í svari við fyrirspurn fréttastofu á að aðeins sektarhluti ákvörðunarinnar hafi verið felldur niður. Efnishluti hennar sem snýr að brotum sveitarfélagsins á persónuverndarlöggjöfinni standi óhaggaður. Persónuvernd hafði frumkvæði að því að afturkalla hluta sambærilegra ákvarðana sem beindust að öðrum sveitarfélögum til að gæta jafnræðis. Sektarhluti þeirra ákvarðana var einnig afturkallaður en efnishlutinn ekki. Persónuvernd féllst á að í ályktunum þeirra hefðu falist annmarkar á efni þar sem rannsókn stofnunarinnar leiddi ekki ótvírætt í ljós að persónuupplýsingar um hrein einkamálefni nemenda í nemendakerfi Google hefðu í reynd verið unnar þrátt fyrir að hætta á slíkri vinnslu væri óumdeild. Persónuupplýsingar barna njóta sérstakrar verndar Í upphaflegri úrlausn málanna var bent á að með notkun skýjalausnar Google væri ekki nægilega vel gætt að vernd persónuupplýsinga barna sem njóta sérstakrar verndar í persónuverndarlöggjöfinni. Var meðal annars horft til þess að áhætta fylgdi því að flytja persónuupplýsingar til Bandaríkjanna og vinna með þær þar án þess að gripið hefði verið til viðeigandi verndarráðstafana. Meðal upplýsinga í kerfinu voru nöfn nemenda, verkefni þeirra og samskipti kennara og nemenda.

Share this article