Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Goog­le stækkar stærstu hluta­fjáraukningu sögunnar

Read Full Article →

Alphabet, móðurfélag Google, hefur ákveðið að efna til 85 milljarða dala hlutafjáraukningar til að styðja við fjárfestingar tæknirisans í gervigreindarinnviðum. Félagið tilkynnti í dag um að það hefði ákveðið að stækka hina fyrirhuguðu hlutafjáraukningu um 5 milljarða dala frá því sem áður hafði verið gefið upp. Um er að ræða fyrstu hlutafjáraukningu Alphabet í meira en tvo áratugi. Þetta er stærsta hlutafjáraukning sögunnar, að því er segir í frétt Financial Times . Af 85 milljarða dala fjármögnuninni fjárfesti fjárfestingarfélagið Berkshire Hathaway fyrir 10 milljarða dala. Hlutafjáraukningin felur einnig í sér að Alphabet muni sækja 40 milljarða dala með miðlunaráætlun, þ.e. með beinni sölu á nýjum hlutum í félaginu á hlutabréfamarkaði af og til frá og með byrjun þriðja ársfjórðungs. Áætlað er að stærstu tæknifyrirtæki heims muni fjárfesta fyrir samtals 725 milljarða dala í gervigreindartækni í ár með tilheyrandi áhrifum á efnahagsreikning félaganna.

Share this article