Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Reykjavík Geothermal hefur jarðhitaboranir á Tenerife

Read Full Article →

Innlent | mbl | 28.5.2026 | 15:25 Reykjavík Geothermal hefur jarðhitaboranir á Tenerife Rannsóknarholan, sem nú er verið að bora, er staðsett í suðurhlíðum Teide-eldfjallsins og er sú fyrsta af nokkrum fyrirhuguðum rannsóknarholum sem ætlað er að meta jarðhitamöguleika eyjanna. Ljósmynd/Reykjavík Geothermal Setja bókamerki Reykjavík Geothermal, í samstarfi við stjórnvöld og orkufyrirtæki á Tenerife, hefur hafið jarðhitaboranir til raforkuframleiðslu á Kanaríeyjum. Fram kemur í tilkynningu frá félaginu að verkefnið marki stór tímamót í vegferð eyjanna í átt að hreinni, öruggari og staðbundinni orkuframleiðslu. Tekið er fram, að rannsóknarholan, sem nú er verið að bora, sé staðsett í suðurhlíðum Teide-eldfjallsins og sé sú fyrsta af nokkrum fyrirhuguðum rannsóknarholum sem ætlað sé að meta jarðhitamöguleika eyjanna. Holunum, sem muni ná niður á um 2.500–3.000 metra dýpi, sé ætlað að staðfesta hvort auðlindin henti til langtímaframleiðslu á endurnýjanlegri orku. Þá kemur fram að Reykjavík Geothermal sé leiðandi eigandi og þróunaraðili verkefnisins ásamt spænskum samstarfsaðilum og opinberum aðilum á Tenerife og komi að uppbyggingu verkefnisins allt frá rannsóknum og fjármögnun til þróunar og framtíðarreksturs. Meðal samstarfsaðila Reykjavík Geothermal er spænska fyrirtækið DISA sem er eitt stærsta fyrirtæki eyjanna og stærsti fjárfestir í hreinni orku Kanaríeyja. Kort af Tenerife sem sýnir rannsóknarsvæðin þrjú, sem eru merkt inn með bláum útlínum. Rauða stjarnan sýnir hvar er verið að bora. Kort/Reykjavík Geothermal Náðu sögulegum áfanga í maí Bent er á að sögulegur áfangi í verkefninu hafi náðst núna um miðjan maí þegar boranir hófust á fyrstu rannsóknarholunni sem staðsett sé á suðurhluta Tenerife. „Verkefnið byggir á margra ára undirbúningsvinnu samstarfsaðilanna, sem tryggðu sér rannsóknarleyfi frá spænskum yfirvöldum á Tenerife og nágrannaeyjunni La Palma í opinberum útboðum 2023. Gríðarleg vinna er að baki í jarðvísindarannsóknum og hinum ýmsu leyfisferlum, grenndarkynningum, skipulagsmálum og vinnu með hagaðilum. Núverandi lagaumhverfi gerir það vandasamt að selja þá orku sem verkefnið gæti framleitt, vegna sérreglna sem skekkja orkumarkaðinn á Kanaríeyjum með því að niðurgreiða orkuframleiðslu með olíu og koma þannig í veg fyrir að ódýrari og hreinni orka komist að. Þróunaraðilar verkefnisins treysta þó á að spænsk stjórnvöld muni skapa skilyrði fyrir því að hreinni, hagkvæmari og sjálfbærari orkulausnir fái að ryðja sér til rúms á orkukerfi eyjanna,“ segir í tilkynningunni. Enn fremur segir að verkefnið hafi jafnframt hlotið öflugan stuðning frá Evrópusambandinu og spænskum stjórnvöldum, sem hafi veitt allt að 58 milljónir evra í styrki til rannsóknarborana á allt að þremur svæðum samstarfsaðilanna á Tenerife og einu svæði á nágrannaeyjunni La Palma. Magnús Ásbjörnsson, forstjóri Reykjavík Geothermal, segir í tilkynningunni að þetta séu stór tímamót bæði fyrir verkefnið sjálft og framtíð endurnýjanlegrar orku á Kanaríeyjum. Ljósmynd/Reykjavík Geothermal Skref í átt að auknu orkuöryggi „Verkefnið markar mikilvægt skref í átt að auknu orkuöryggi og orkusjálfstæði Kanaríeyja. Í dag byggir yfir 80% raforkuframleiðslu á Kanaríeyjum á innfluttri olíu, sem leiðir af sér orkukostnað sem er allt að sex sinnum hærri en á Íslandi og mikla kolefnislosun,“ segir í tilkynningunni. Þá er bent á að á Tenerife, sem er um 2% af stærð Íslands, sé þegar mikið landsvæði helgað vind- og sólarorkuverkefnum, sem taki að jafnaði um tíu sinnum meira pláss en jarðhitaverkefni. Því hafi yfirvöld á eyjunni gefið út að ekki verði lagst í fleiri stóra vind- og sólarorkugarða að svo stöddu. „Ekkert vatnsafl er að hafa og litlar grynningar sem mætti nýta fyrir vindorkugarða á hafi, svo jarðhitinn gæti verið eini raunhæfi möguleiki eyjanna til að tryggja sjálfbæra framtíð með orkuskiptum í raforkuframleiðslu,“ segir enn fremur í tilkynningunni. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Yfirgefur KR-inga á miðju tímabili Reykjavík Geothermal hefur jarðhitaboranir á Tenerife Einn virtasti þjálfari landsins tekur við Grindavík Lögreglan á Jótlandi kallar á hjálp Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Umræðan Hræðsluáróður um staðreyndir Fyrirspurn til Kristrúnar Frostadóttur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Gripinn við að sækja Fedex-sendingu í Hafnarfirði ESB-gögnin verða ekki kynnt almenningi Skipta bókavörðum safnsins út fyrir öryggisverði Miðflokksmenn óánægðir með ákvörðun Hildar Mest lesið Í gær Í vikunni Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Andlát: Stefán Carlsson Víðir vill ekki tjá sig Kristrún: „Þetta hefur aldrei verið gert“ Segja Ísland ógna útgáfufrelsi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Stakk mann og sló annan með járnröri í höfuðið Gistu í hylki í Perú Fordæma ummælin: Órökstudd og ámælisverð Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Óbærileg ár fram undan Hildur Björnsdóttir verður borgarstjóri Fulltrúar þriggja flokka undirrita samning í Viðey Afhenti Daða 42 þúsund undirskriftir Búið er að finna konuna Ari Edwald: „Mjög skrýtið“ Gripinn við að sækja Fedex-sendingu í Hafnarfirði Þórarna nýr forstjóri Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Enginn mætti frá ríkisstjórninni Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“ Nýjast á mbl.is » Yfirgefur KR-inga á miðju tímabili Reykjavík Geothermal hefur jarðhitaboranir á Tenerife Einn virtasti þjálfari landsins tekur við Grindavík Lögreglan á Jótlandi kallar á hjálp Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Umræðan Hræðsluáróður um staðreyndir Fyrirspurn til Kristrúnar Frostadóttur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Selenskí bað Trump um fleiri skotfæri Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Borgarlínustöðvar boðnar út Skaut tollgæsla á bifreið með barn innanborðs? Mest lesið Í gær Í vikunni Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Andlát: Stefán Carlsson Víðir vill ekki tjá sig Kristrún: „Þetta hefur aldrei verið gert“ Segja Ísland ógna útgáfufrelsi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Stakk mann og sló annan með járnröri í höfuðið Gistu í hylki í Perú Fordæma ummælin: Órökstudd og ámælisverð Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Óbærileg ár fram undan Hildur Björnsdóttir verður borgarstjóri Fulltrúar þriggja flokka undirrita samning í Viðey Afhenti Daða 42 þúsund undirskriftir Búið er að finna konuna Ari Edwald: „Mjög skrýtið“ Gripinn við að sækja Fedex-sendingu í Hafnarfirði Þórarna nýr forstjóri Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Enginn mætti frá ríkisstjórninni Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“

Share this article