Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Setja 2,5 milljarða í Reykjavik Geothermal

Read Full Article →

Viðskipti | Morgunblaðið | 25.2.2026 | 10:45 Setja 2,5 milljarða í Reykjavik Geothermal Tulu Moye verkefni Reykjavik Geothermal í Eþíópíu. Fyrirtækið hefur komið að bæði stórum og smáum jarðhitaverkefnum um allan heim. Ásgeir Ingvarsson [email protected] Setja bókamerki Reykjavik Geothermal hefur lokið fjármögnunarlotu að upphæð allt að 20 milljónir dala, jafnvirði um 2,5 milljarða króna. Fjármögnunin var leidd af Innviðum fjárfestingum II slhf., innviðasjóði í stýringu hjá Summu rekstrarfélagi hf., auk þess sem núverandi hluthafar tóku þátt. Þá standa yfir viðræður við meðfjárfesta um þátttöku í fjármögnuninni. Að svo stöddu fæst ekki uppgefið hve stór eignarhlutur fjárfestanna verður eftir viðskiptin en fjármagnið verður m.a. notað til að efla starfsemi og vöxt Reykjavik Geothermal. Um er að ræða fyrsta áfanga fjármögnunar félagsins, en áætlað er að heildarumfang fjárfestinga Reykjavik Geothermal í þeim verkefnum sem nú eru í þróun hjá félaginu nemi a.m.k. 80 milljörðum króna á næstu fjórum árum, að mestu á Íslandi. Undirbúningur að næstu fjármögnunarlotu er nú þegar hafinn. Í meira en 50 löndum Magnús Dagur Ásbjörnsson er forstjóri Reykjavik Geothermal. Hann var einn stofnenda fyrirtækisins árið 2008 ásamt Guðmundi Þóroddssyni, sem í dag er stjórnarformaður, auk hóps sérfræðinga sem komu auga á að áhugaverð tækifæri gætu verið fólgin í því að nýta íslenska þekkingu í að þróa jarðhitaverkefni erlendis. Undanfarin ár hefur Reykjavik Geothermal unnið að þróun ráðgjafarverkefna víðs vegar um heiminn og meðal annars tekið þátt í tímamótaverkefnum í Mið-Austurlöndum og Afríku. „Við höfum komið að þróun jarðhitavirkjana, ýmist sem ráðgjafar eða þróunaraðilar, í rúmlega 50 þjóðlöndum,“ segir Magnús. „Sum verkefnin voru stór og önnur smá, en við þróuðum t.d. á sínum tíma tvær af stærstu einkafjárfestingum í orkugeira Afríku, tvær 150 MW jarðhitavirkjanir í Eþíópíu. Því miður fór svo að borgarastríð braust út í landinu og setti strik í reikninginn eftir tíu ára vinnu.“ Stærsta verkefni Reykjavik Geothermal þessa stundina er þróun Bolaölduverkefnisins í Ölfusi, auk þess sem fyrirtækið er að þróa fyrstu jarðhitaverkefni Spánar á Kanaríeyjum og taka þátt í uppbyggingu jarðvarma á Mið-Austurlöndum. „Við höfum starfað í Mexíkó, Karíbahafinu og allt austur til Papúa Nýju-Gíneu, og vinnum yfirleitt með stórum alþjóðlegum orkufjárfestum sem og heimamönnum á hverju svæði fyrir sig.“ Vinnustaðurinn stækkar Reykjavik Geothermal er í dag með þrjú rannsóknarleyfi á Íslandi og segir Magnús að markvisst sé unnið að frekari þróun orkuverkefna innanlands. Bolaölduverkefnið verður langstærsta fjárfesting félagsins á næstu árum og mun aðkoma Summu og íslensku lífeyrissjóðanna koma að góðum notum. „Á Íslandi erum við að byggja verkefnið upp sjálf en erlendis höfum við verið í samfloti við aðra fjárfesta,“ útskýrir hann. Greinilegt er að Bolaölduvirkjunin mun kalla á verulega fjölgun starfsfólks og hefur Reykjavik Geothermal þegar auglýst eftir sérfræðingum í fjölbreyttar stöður. Magnús gefur ekki upp hversu mörg stöðugildi munu bætast við en þó er ljóst að vinnustaðurinn mun stækka mikið frá því sem nú er. Þá verður ekkert lát á umsvifum Reykjavik Geothermal erlendis. Magnús segir að virkjun jarðvarma eigi mikið inni og að bæði einkaaðilar og stjórnvöld víðs vegar um heim sýni þessum virkjunarkosti vaxandi áhuga. „Eftir því sem hlutur vindorku og sólarorku eykst í orkuframboðinu sjáum við að eftirspurnin fer vaxandi eftir grænu grunnafli og þar er jarðhitinn einstakur valkostur. Tækifærið er risastórt á alþjóðavísu, en flest stærstu jarðhitafyrirtæki heims eru veitufyrirtæki í sínu heimalandi sem hafa ekki umboð til erlendra fjárfestinga,“ segir hann. „Í vinnu okkar erlendis viljum við geta treyst á sterkar undirstöður á heimamarkaði okkar og aðkoma Summu og lífeyrissjóðanna tryggir það.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Pistlar » Sigurður Már Jónsson ESB-biðstofan og Ísland Sigurður Már Jónsson Nafnlausir heimildarmenn og ESB-umsókn Fleira áhugavert Kristrún: Ótrúlega sársaukafullt stríð Nota um 30 tæki og geta kallað út fleiri 40 milljarða búhnykkur „Á eiturlyfjum og voru gjörsamlega stjórnlausir“ Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Lækka verð á offitulyfjum 2,7 milljarðar króna á dag Valin besta höfn Norður-Atlantshafsins 50 þúsund með Takk Brutu af sér en verða ekki beitt viðurlögum Óvenjuhátt hlutfall enn starfandi Kristín Gunnars til Landsbankans Fréttaskýring: Búið spil, eða bara rétt að byrja? Hagkaup sendir áfengið með Wolt Arnar Þór verður einn eftir yfir búinu Lækka verð á offitulyfjum 2,7 milljarðar króna á dag Valin besta höfn Norður-Atlantshafsins Fréttaskýring: Búið spil, eða bara rétt að byrja? 50 þúsund með Takk Óvenjuhátt hlutfall enn starfandi Hagkaup sendir áfengið með Wolt OK verðlaunað af Fortinet Nova kaupir Ofar á 4,4 milljarða Samrunaviðræðum Íslandsbanka og Skaga slitið Úrskurðuð vanhæf sem skiptastjóri Play Lækka verð á offitulyfjum Kristín Gunnars til Landsbankans Nova kaupir Ofar á 4,4 milljarða Vínverslun Hagkaups vel tekið SAND ræður Apríl, Evu og Oddnýju Síminn breytir nafni samstæðunnar 2,7 milljarðar króna á dag Samrunaviðræðum Íslandsbanka og Skaga slitið Arnar Þór verður einn eftir yfir búinu Pistlar » Sigurður Már Jónsson ESB-biðstofan og Ísland Sigurður Már Jónsson Nafnlausir heimildarmenn og ESB-umsókn Fleira áhugavert Kristrún: Skiptir máli að við stöndum með Úkraínu Píratar leysa úr hnökrum og fá greitt á næstu vikum 40 milljarða búhnykkur Myndir: Ekkert lát á landrofinu og skiltin fjarlægð Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Lækka verð á offitulyfjum 2,7 milljarðar króna á dag Valin besta höfn Norður-Atlantshafsins 50 þúsund með Takk Brutu af sér en verða ekki beitt viðurlögum Óvenjuhátt hlutfall enn starfandi Kristín Gunnars til Landsbankans Fréttaskýring: Búið spil, eða bara rétt að byrja? Hagkaup sendir áfengið með Wolt Arnar Þór verður einn eftir yfir búinu Lækka verð á offitulyfjum 2,7 milljarðar króna á dag Valin besta höfn Norður-Atlantshafsins Fréttaskýring: Búið spil, eða bara rétt að byrja? 50 þúsund með Takk Óvenjuhátt hlutfall enn starfandi Hagkaup sendir áfengið með Wolt OK verðlaunað af Fortinet Nova kaupir Ofar á 4,4 milljarða Samrunaviðræðum Íslandsbanka og Skaga slitið Úrskurðuð vanhæf sem skiptastjóri Play Lækka verð á offitulyfjum Kristín Gunnars til Landsbankans Nova kaupir Ofar á 4,4 milljarða Vínverslun Hagkaups vel tekið SAND ræður Apríl, Evu og Oddnýju Síminn breytir nafni samstæðunnar 2,7 milljarðar króna á dag Samrunaviðræðum Íslandsbanka og Skaga slitið Arnar Þór verður einn eftir yfir búinu

Share this article