Reykjavík Geothermal (RG) hefur ráðið Auðbjörgu Ólafsdóttur sem samskipta- og markaðsstjóra og Hermann Baldursson sem fjármálastjóra. „Ráðningarnar eru liður í áframhaldandi uppbyggingu félagsins á tímum vaxtar og aukinna umsvifa bæði á Íslandi og erlendis,“ segir í fréttatilkynningu. Reykjavík Geothermal er alþjóðlegt jarðvarmaþróunarfyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun og fjármögnun jarðhitaverkefna. Frá stofnun hefur félagið komið að jarðhitaverkefnum í um 50 löndum sem þróunaraðili eða ráðgjafi og byggt upp reynslu og alþjóðlegt tengslanet á sviði jarðhita. Í dag vinnur félagið að verkefnum á Íslandi, Kanaríeyjum og í Mið-Austurlöndum. Sjá einnig Reykjavík Geothermal sótti 2,4 milljarða Fyrr á þessu ári lauk Reykjavík Geothermal jafnframt allt að 20 milljóna dala fjármögnun sem styður við áframhaldandi uppbyggingu verkefna félagsins, þar á meðal Bolaöldu í Ölfusi. Þá hófust nýverið rannsóknarboranir á Tenerife þar sem Reykjavík Geothermal leiðir þróun verkefnis sem gæti orðið mikilvægt skref í átt að auknu orkuöryggi og sjálfbærari orkuframtíð Kanaríeyja. Auðbjörg Ólafsdóttir hefur verið ráðin samskipta- og markaðsstjóri. Auðbjörg hefur reynslu af stjórnunar-, samskipta- og markaðsmálum, fjárfestatengslum, stefnumótun og uppbyggingu fyrirtækjamenningar. Hún starfaði síðast sem stjórnendaráðgjafi og leiðtogaþjálfari hjá alþjóðlega ráðgjafafyrirtækinu FranklinCovey. Áður gegndi hún stöðu yfirmanns fyrirtækjamenningar og samskipta hjá Controlant þar sem hún leiddi málaflokka sjálfbærni, samskipta, fræðslu og menningar á tímabili mikils vaxtar og alþjóðlegrar uppbyggingar. Þar áður starfaði Auðbjörg í átta ár hjá Marel sem samskiptastjóri og leiddi þar fjárfestatengsl ásamt innri og ytri samskiptum félagsins á alþjóðavísu. Á þeim tíma starfaði Marel í yfir 30 löndum og var skráð á markað bæði á Íslandi og í Hollandi. Auðbjörg hefur jafnframt starfað sem hagfræðingur hjá Íslandsbanka, fyrir Fastanefnd Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins í Reykjavík og Osló, auk þess sem hún starfaði sem blaðamaður og fréttastjóri hjá Reuters og Viðskiptablaðinu. Hún er með BA-gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í hagfræði frá Curtin University í Ástralíu. Þá hefur hún lokið markþjálfanámi og öðlast kennsluréttindi. Í starfi sínu hjá Reykjavík Geothermal mun Auðbjörg leiða áframhaldandi þróun á vörumerki félagsins, samskiptum, markaðsmálum og sýnileika á alþjóðavettvangi. Hún mun jafnframt styðja við samskipti við fjárfesta, samstarfsaðila, stjórnvöld og aðra hagaðila á þeim mörkuðum þar sem félagið starfar. Hermann Baldursson hefur verið ráðinn fjármálastjóri Reykjavík Geothermal og mun leiða fjármálastarfsemi félagsins á næsta vaxtarskeiði þess. Hann hefur komið að fjölda verkefna á sviði fjármála og fjármögnunar, sér í lagi í orkugeiranum, en hann hefur unnið að jarðhitaverkefnum um heim allan ásamt því að sinna ráðgjöf fyrir íslensk orkufyrirtæki. Hermann var forstöðumaður fjármála og rekstrar hjá Baseload Power á Íslandi um fjögurra ára skeið áður en hann gekk til liðs við Reykjavík Geothermal. Þar áður sinnti hann fyrirtækjaráðgjöf í rúmlega 10 ár fyrir fjölbreyttan hóp viðskiptavina hjá Centra Fyrirtækjaráðgjöf, þar sem hann var einn af stofnendum og eigendum. Þá hefur Hermann starfað sem rekstrarráðgjafi hjá Capacent, sem fulltrúi hjá Reykjavíkurborg, sem blaðamaður á Viðskiptablaðinu og sem sérfræðingur hjá Skattstjóranum í Reykjavík. Hermann er með BS-gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands og MBA-gráðu frá Michigan State University í Bandaríkjunum. Í starfi sínu mun Hermann bera ábyrgð á fjármálastjórnun félagsins, fjármögnun verkefna, fjárfestatengslum og áframhaldandi uppbyggingu fjármálaumgjörðar sem styður við vöxt og alþjóðlega starfsemi Reykjavík Geothermal. Vilja verða leiðandi á alþjóðavísu „Við erum afar ánægð með að fá bæði Auðbjörgu og Hermann til liðs við okkur á þessum mikilvægu tímamótum hjá Reykjavík Geothermal,“ segir Magnús Ásbjörnsson, forstjóri Reykjavík Geothermal. „Reykjavík Geothermal er á spennandi vaxtarskeiði. Verkefnin okkar stækka hratt, bæði hér á Íslandi og á alþjóðavettvangi, og því höldum við áfram að byggja upp öflugt teymi sem getur stutt við næsta kafla í þróun félagsins. Auðbjörg og Hermann koma bæði með dýrmæta reynslu, þekkingu og leiðtogahæfni sem mun styrkja félagið verulega á komandi árum og hjálpa okkur að fylgja eftir þeim metnaðarfullu markmiðum sem við höfum sett okkur. Þörfin fyrir örugga, sjálfbæra og hagkvæma orku hefur aldrei verið meiri en nú. Við sjáum aukinn áhuga á jarðhita víða um heim, bæði vegna orkuskipta, orkuöryggis og loftslagsmarkmiða. Framtíðarsýn Reykjavík Geothermal er að verða leiðandi jarðvarmaþróunarfyrirtæki á alþjóðavísu og taka virkan þátt í að þróa verkefni sem geta orðið hluti af lausninni við orku- og loftslagsáskorunum framtíðarinnar. Við viljum umbreyta jarðhitaauðlindum í áreiðanlegar langtímaorkulausnir sem styrkja samfélög, auka orkuöryggi og styðja við orkuskipti um allan heim. Framundan eru því afar spennandi tímar hjá félaginu.“