Hlutabréfaverð Alvotech hækkaði um 22% í ríflega 200 milljóna króna veltu á aðalmarkaði Kauphallarinnar. Gengi félagsins stendur nú í 452 krónum á hlut. Til samanburðar stóð gengi líftæknifyrirtækisins í 370,5 krónum við lokun markaða í gær og hafði þá aldrei verið lægra. Hlutabréfaverð Alvotech stóð í 397 krónum kl. 13:30 í dag en tók kipp eftir opnun markaða vestanhafs. Alvotech tilkynnti í morgun um að það hefði lagt inn að nýju til Matvæla- og lyfjastofnunar Bandaríkjanna (FDA) umsóknir um leyfi til markaðssetningar í Bandaríkjunum á hliðstæðum við líftæknilyfin Simponi, Simponi Aria (AVT05) og Eylea 2 mg (AVT06). Félagið segist hafa sent inn ítarlegt svar við athugasemdabréfi FDA tengt úttekt á framleiðsluaðstöðu félagsins síðastliðið sumar, auk þess sem að það hafi svarað þeim athugasemdum FDA sem bárust í kjölfar reglubundinnar úttektar á cGMP-framleiðsluleyfi félagsins sem fram fór í byrjun maí sl. Sjá einnig Vonast til að koma lyfjunum á markað fyrir árslok Lisa Graver, forstjóri Alvotech, sagði í viðtali við Viðskiptablaðið að félagið miði við að bandaríska lyfjaeftirlitið FDA taki ákvörðun um umsóknir félagsins á fjórða ársfjórðungi. Hún sagði félagið áfram munu eiga í samskiptum við FDA og kanna hvort hægt sé að flýta ferlinu. Aðalatriðið sé þó að fá samþykki umsóknanna. Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,4% í viðskiptum dagsins. Tuttugu af 27 félögum aðalmarkaðar Kauphallarinnar hækkuðu og fimm lækkuðu.