Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Aðsend grein: Lausnin er ekki meiri skattar

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 12.6.2026 | 7:00 Aðsend grein: Lausnin er ekki meiri skattar Jens Garðar Helgason Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Nú fer að líða að lokum yfirstandandi þings og enn mörg mál óafgreidd, þar á meðal fjármálaáætlun. Orðræða stjórnarmeirihlutans um hin ýmsu mál sem á eftir að afgreiða hefur verið í belg og biðu og byggst að miklu leyti á frösum. Ræsum vélarnar er einn þeirra frasa. Nýjum hápunkti var hins vegar náð þegar þingmaður stjórnarmeirihlutans lét eftirfarandi orð falla í pallborðsumræðum á fundi sem Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu héldu nýverið: „Á fjárlögum er nú kominn um 800 milljarða halli og við verðum að bregðast við með því að sækja meiri tekjur og þá er ekkert óeðlilegt að horfa þangað sem gengur vel, og það gengur bara vel í fjármálakerfinu.“ Það er ekki hægt annað en að staldra við þessi ummæli og velta því fyrir sér hvert við séum eiginlega komin á Alþingi þegar einu úrræðin sem ríkisstjórnin og þingmenn stjórnarmeirihlutans bera á borð landsmanna eru að auka álögur á þjóðfélagsþegna lýðveldisins, fólk og fyrirtæki sem hér búa og starfa. Markmið fjármálaáætlunar ríkisstjórnarinnar um að stöðva hallarekstur ríkissjóðs er gott og gilt. Hins vegar er það þyngra en tárum taki að hún ætli sér fyrst og fremst að reyna að ná því markmiði með því að auka álögur. Sér í lagi þegar fyrir liggur að hærri skattar og gjöld hafa almennt neikvæð áhrif á framtakssemi og verðmætasköpun fólks og fyrirtækja og áhrif þeirra á mögulegar framtíðartekjur ríkissjóðs óvissar, í besta falli. Að hugsa út fyrir vinstra boxið Það skal öllum ljóst vera að það eru aðrar leiðir færar til að stöðva hallarekstur ríkissjóðs. Fyrr á árinu lagði Sjálfstæðisflokkurinn fram efnahagstillögur sem einmitt leggja grunninn að annarri greiðfærri leið. Sjálfstæðisflokkurinn vill lækka skatta og álögur, leyfa atvinnulífinu að blómstra og létta róðurinn fyrir fólkið og fyrirtækin í landinu. Staðreyndin er nefnilega sú að takist að ýta undir verðmætasköpun og styðja við atvinnulífið með því að ríkið geri minna, betur, stækkar kakan sem hinar ýmsu álögur eru teknar af og ríkissjóður fær fleiri aura í vasann. Fyrrgreind ummæli þingmannsins lýsa ákveðnu viðhorfi til verðmætasköpunar og í raun til þeirrar áhættu sem fólk tekur þegar það ákveður að stofna og reka fyrirtæki. Það er óboðlegt öllum þeim sem hér búa og byggja þetta fallega land að ríkisstjórnin virðist ætla sér að seilast gegndarlaust í vasa fólks og fyrirtækja. Frasinn ræsum vélarnar virðist aðeins eiga við skattagleði ríkisstjórnarinnar. „Vér mótmælum allir“ eru fleyg orð sem látin voru falla við ærið tilefni á sínum tíma. Því miður eiga þau nú einnig við. Því fyrr sem ríkisstjórnin og þingmenn stjórnarmeirihlutans átta sig á því að verðmætin falla ekki af himnum ofan og að það er ekki hægt að auka álögur endalaust, því betra. Það verður að hugsa út fyrir vinstra boxið og finna aðrar lausnir. Undirritaður hvetur ríkisstjórnina, þingmenn stjórnarmeirihlutans og í raun þingheim allan til að líta til lausna Sjálfstæðisflokksins. Jens Garðar Helgason, varaformaður ­Sjálfstæðisflokksins og þingmaður Norðausturkjördæmis. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Sex flugferðum aflýst í dag Ekki hleypt inn í landið fyrir HM Kanada – Bosnía kl. 19, bein lýsing Brennivín hlaut gullverðlaun í alþjóðlegri keppni Þverá gaf 25 laxa í opnunarholli Umræðan Höggvið á orkuhnúta, einn af öðrum Réttar forsendur, rangar ályktanir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Málið dagaði uppi hjá starfsmanni Skerða um 1% í þorski og 20% í ýsu Ítrekar gagnrýnina: „algjörlega ótímabær“ Prinsessan er látin Mest lesið Í gær Í vikunni Íhuguðu að kasta sér fram af brú Subway auglýsir verð í evrum Samningnum sagt upp: „Eins og við séum ekki fólk“ Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Réðst á dreng í sundi Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Málið dagaði uppi hjá starfsmanni Afþakka risaeðlubein eftir þriggja ára vinnu starfshóps Starfsmönnum fjölgað og launakostnaður hækkaði Eldurinn kviknaði út frá hleðslutæki Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Réðst á dreng í sundi Óttast er að hundruð missi vinnuna Íslenskur maður ekki fundið sársauka í 73 ár Lokuðu skrifstofum Hagkaupa eftir alvarlega hótun Dæmið gengur ekki upp Farþegar skildir eftir vegna ölvunar Nýjar íbúðir seljast ekki á ásettu verði Borgarstjóri fagnar stórafmæli í Ráðhúsinu Dró sér 3,3 milljónir vegna leigu á Tenerife Bubbi sleit liðband Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Um 300 þegar fengið viðvörun Tilbúnir að slást í sundklefunum Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Nýjast á mbl.is » Sex flugferðum aflýst í dag Ekki hleypt inn í landið fyrir HM Kanada – Bosnía kl. 19, bein lýsing Brennivín hlaut gullverðlaun í alþjóðlegri keppni Þverá gaf 25 laxa í opnunarholli Umræðan Höggvið á orkuhnúta, einn af öðrum Réttar forsendur, rangar ályktanir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ítrekar gagnrýnina: „algjörlega ótímabær“ Sex flugferðum aflýst í dag Íbúðaverð hækkaði um 103% á tíu árum Íhuguðu að kasta sér fram af brú Mest lesið Í gær Í vikunni Íhuguðu að kasta sér fram af brú Subway auglýsir verð í evrum Samningnum sagt upp: „Eins og við séum ekki fólk“ Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Réðst á dreng í sundi Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Málið dagaði uppi hjá starfsmanni Afþakka risaeðlubein eftir þriggja ára vinnu starfshóps Starfsmönnum fjölgað og launakostnaður hækkaði Eldurinn kviknaði út frá hleðslutæki Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Réðst á dreng í sundi Óttast er að hundruð missi vinnuna Íslenskur maður ekki fundið sársauka í 73 ár Lokuðu skrifstofum Hagkaupa eftir alvarlega hótun Dæmið gengur ekki upp Farþegar skildir eftir vegna ölvunar Nýjar íbúðir seljast ekki á ásettu verði Borgarstjóri fagnar stórafmæli í Ráðhúsinu Dró sér 3,3 milljónir vegna leigu á Tenerife Bubbi sleit liðband Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Um 300 þegar fengið viðvörun Tilbúnir að slást í sundklefunum Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna

Share this article