Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

SA saka SKE um að segja hálfa sögu

Read Full Article →

Innlent | mbl | 1.7.2026 | 14:42 SA saka SKE um að segja hálfa sögu Samtök atvinnulífsins telja umræðuskjal SKE misvísandi. Ljósmynd/Colourbox Andrés Magnússon [email protected] Setja bókamerki Samtök atvinnulífsins (SA) gera harðorða athugasemd við „umræðuskjal“ Samkeppniseftirlitsins (SKE) um dagvöruverð á Íslandi, en þar sé aðeins hálf sagan sögð. Í umsögn SA segir að ekki sé deilt um að verðlag á Íslandi sé hátt, en umræðan verði villandi ef horft sé fram hjá lykilþáttum á borð við laun, kaupmátt, gengi krónunnar, opinberar álögur, regluverk, flutningskostnað og smæð íslenska markaðarins, sem allt hafi áhrif á verðlag. Samkeppniseftirlitið birti umræðuskjalið hinn 10. júní síðastliðinn. Þar sagði að matvara á Íslandi væri 55% dýrari en að meðaltali í ríkjum Evrópusambandsins og aðeins dýrari í Sviss, þar sem verðið væri 58% yfir meðaltali ESB. Í Noregi væri matvara 32% dýrari en í ESB, en í Svíþjóð og Finnlandi aðeins 6% yfir meðaltalinu. Há laun og kaupmáttur hafa sitt að segja SA segja í umsögn sinni að slíkur verðtölusamanburður segi lítið einn og sér. Verðlag sé almennt hátt í löndum þar sem laun, landsframleiðsla á mann og kaupmáttur séu mikil. Ísland sé að mati samtakanna „skólabókardæmi“ um það hvernig sterkar útflutningsgreinar leiði til hás launastigs, góðra lífskjara og þar með hás verðlags. Í umsögninni er bent á að launakostnaður á Íslandi sé nú orðinn sá hæsti í Evrópu og að hlutur launafólks í verðmætasköpun sé óvíða meiri. Þá hafi miklar launahækkanir að mati SA bæði hækkað kostnað fyrirtækja og viðhaldið sterkri eftirspurn. Vísa samtökin til þess að launavísitala hafi að meðaltali hækkað um 7,7% á ári undanfarinn áratug. Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA. mbl.is/Eyþór „Það er enginn ágreiningur um að verðlag á Íslandi sé hátt,“ er haft eftir Bjarna Benediktssyni, framkvæmdastjóri SA, í tilkynningu samtakanna. „Ágreiningurinn snýst um skýringarnar,“ segir Bjarni. Hæpin aðferðafræði SA gera einnig athugasemdir við aðferðafræðina og nefna t.d. að í umræðuskjalinu sé talað um dagvöru, en í skýringartexta SKE komi fram að stuðst sé við gögn frá hagstofu Evrópusambandsins (Eurostat) úr flokknum „Food“, eða matvöru. Sá flokkur nái ekki til ýmiss varnings sem jafnan teljist til dagvöru, t.d. sem hreinlætis- og snyrtivara. Samtökin gagnrýna enn fremur að SKE hafi fengið 30 milljóna króna viðbótarframlag frá atvinnuvegaráðherra til að efla eftirlit með dagvörumarkaði, sem lið í aðgerðum stjórnvalda gegn verðbólgu. Að mati SA veki það spurningar þegar auknu skattfé sé varið í eftirlit stofnunar sem hafi þegar víðtækar valdheimildir, á sama tíma og samkeppniseftirlit hér á landi sé að þeirra mati þungt í vöfum. Í lok umsagnarinnar segja SA að draga megi úr kostnaði fyrirtækja, og þar með stuðla að lægra verði til neytenda, með umbótum á umgjörð kjarasamninga, minni opinberum álögum, einföldun regluverks og öflugri hagsmunagæslu á alþjóðlegum vettvangi. Samtökin segjast sem fyrr reiðubúin til samtals við stjórnvöld um slíkar aðgerðir. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Breytingar á enska landsliðinu Google gert að greiða 185 milljarða Ráðherra var ekki upplýstur um álitið SA saka SKE um að segja hálfa sögu Noregur logar Umræðan Varnaðarorð utanríkisráðherra Atvinnuleysi um hásumar er óviðunandi staða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Slysið á Eir á borði rannsóknardeildar lögreglu „Að fá A er eitthvað sem er framúrskarandi“ Niðurstaðan áfellisdómur Börn niður í sjö ára að skoða klám Mest lesið Í gær Í vikunni Féll fram af svölum og lést Lögreglan lýsir eftir Cezary Kobiela Eldur kviknaði í rafmagnsbíl í bílakjallara Róbóti pakkar 60 þúsundum pinnum á dag „Einhvern veginn vilja þeir okkur ekki heim“ Ekki búsettir hér á landi Ósamræmið „algjörlega augljóst“ Andlát: Sr. Þórir Stephensen Uppsagnir á Bifröst Niðurstaðan áfellisdómur Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Banna kaþólikkum að vera frímúrarar 106 kíló af kókaíni falin undir skipinu Boða atlögu að olíufélagi Hvals hf. Hitinn gæti náð 20 stigum Telja Frakkana komna til Ísafjarðar Andlát: Halldór Haraldsson Atburðarásin eins og í bíómynd Tveir fluttir til skoðunar eftir slys í Mosfellsbæ Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Féll fram af svölum og lést Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Nýjast á mbl.is » Breytingar á enska landsliðinu Google gert að greiða 185 milljarða Ráðherra var ekki upplýstur um álitið SA saka SKE um að segja hálfa sögu Noregur logar Umræðan Varnaðarorð utanríkisráðherra Atvinnuleysi um hásumar er óviðunandi staða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Að fá A er eitthvað sem er framúrskarandi“ Mikill munur á einkunnagjöf staðfestur: 57% með A Ráðherra var ekki upplýstur um álitið Slysið á Eir á borði rannsóknardeildar lögreglu Mest lesið Í gær Í vikunni Féll fram af svölum og lést Lögreglan lýsir eftir Cezary Kobiela Eldur kviknaði í rafmagnsbíl í bílakjallara Róbóti pakkar 60 þúsundum pinnum á dag „Einhvern veginn vilja þeir okkur ekki heim“ Ekki búsettir hér á landi Ósamræmið „algjörlega augljóst“ Andlát: Sr. Þórir Stephensen Uppsagnir á Bifröst Niðurstaðan áfellisdómur Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Banna kaþólikkum að vera frímúrarar 106 kíló af kókaíni falin undir skipinu Boða atlögu að olíufélagi Hvals hf. Hitinn gæti náð 20 stigum Telja Frakkana komna til Ísafjarðar Andlát: Halldór Haraldsson Atburðarásin eins og í bíómynd Tveir fluttir til skoðunar eftir slys í Mosfellsbæ Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Féll fram af svölum og lést Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið

Share this article