Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hulda Clara í skýjunum

Read Full Article →

Hulda Clara lék afar jafnt golf í Tékklandi um helgina. Leiknir voru þrír hringir og hún spilaði hvern hring á 72 höggum eða á pari. Hún fékk þrjá fugla og þrjá skolla á öllum hringjum. „Mér líður ótrúlega. Ég spilaði mjög vel og þetta var minn fyrsti atvinnumannasigur. Þannig ég er í skýjunum með þetta,“ sagði Hulda Clara eftir mótið. „Ég var reyndar ekki alveg viss hvernig staðan var, og hélt ég hefði bara eins höggs forystu. Þannig að ég bjóst við því að vera á leið í umspil. En svo var sigurinn bara í höfn sem gladdi mig auðvitað mjög mikið,“ sagði Hulda Clara. Og Hulda Clara stefnir enn hærra. „Markmiðin mín núna eru að vinna annað mót á þessari mótröð. Það yrði auðvitað frábært. En svo er stóra markmiðið auðvitað að komast inn á LPGA mótaröðina. Vonandi tekst það fyrr en síðar.“

Share this article