Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Hola í höggi í fjórða skipti

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 24.6.2026 | 7:45 Hola í höggi í fjórða skipti Séra Hjálmar kampakátur með afrekið á sunnudaginn. Kristján Jónsson [email protected] Setja bókamerki Séra Hjálmar Jónsson, fv. dómkirkjuprestur og fv. alþingismaður, hefur átt meira láni að fagna á golfvellinum en gengur og gerist. Undanfarinn áratug eða svo hefur hann fjórum sinnum farið holu í höggi. „Annar hver maður segir að ég fái hjálp að ofan. En þegar mér mistekst, og ég týni boltanum í karga, þá er reyndar aldrei minnst á það,“ segir Hjálmar sposkur þegar hann er spurður hvort eitthvað geti skýrt þessa miklu velgengni á par 3-holunum. Hjálmar fór holu í höggi í vikunni á 8. brautinni á Urriðavelli hjá Golfklúbbnum Oddi þar sem hann er meðlimur. Er það í þriðja skiptið sem hann fer holu í höggi á þeirri braut, sem er með nokkrum ólíkindum. Fyrir þá sem ekki þekkja til þá er horft niður á flötina af teignum og viðstaddir geta því séð glögglega þegar boltinn fer í holuna. „Að sjá hann rúlla að og beint ofan í; það er óskaplega gaman, ég viðurkenni það,“ segir Hjálmar. Á það hefur verið bent af meðlimum í Oddi að Hjálmar þurfi að ná þessu einu sinni til viðbótar og þá verði 8. brautin sú braut á íslenskum völlum þar sem kylfingar hafa oftast slegið draumahöggið. Fjórða tilfellið var á 4. brautinni á vellinum. „Til er skemmtileg saga af því. Þegar ég beið eftir því að slá teighöggið á 4. brautinni hringdi síminn sem á nú ekki að gerast í golfi. Ég tók símann og þá var það Björg Jónsdóttir sem bað mig um að jarða föður sinn, Jón Sigurðsson trompetleikara. Ég lofaði því auðvitað en hún heyrði að ég var í golfi. Þá sagði hún: „Sláðu bara næsta högg fyrir pabba,““ rifjar Hjálmar upp og höggið fór beint í holu. „Þarna var því svolítil hjálp að handan.“ Þórarinn Eldjárn orti eitt sinn um hæfni Hjálmars á golfvellinum: Margt er hér að skýra og úr að skera. Skulu þar um bálkar ortir vera – (sálmar), að ekkert brýnna hafi guð að gera en golfkúlum að dúndra fyrir séra – (Hjálmar)? Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Hola í höggi í fjórða skipti „Erum ekki í þessu bara til að vera með“ Trump: Það er verið að okra á viðskiptavinum Vilja 10 ára verndaráætlun fyrir laxinn Jarðskjálfti 3,3 að stærð: Enginn gosórói Umræðan Farsæld Íslands byggist á verðmætasköpun Börnin þurfa nú að bíða lengur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert NATO prófar nýja tækni á Íslandi Fá ekki að opna kaffistofu á Grensásvegi Vita ekki hverjir skulda Kaupmáttur aukist Mest lesið Í gær Í vikunni Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Það var erfiðasti tími lífs míns“ Segir Íslendinga ekki þurfa að óttast Taka upp gjaldskyldu við Smáralind Andlát: Hjörtur Guðnason Kannast ekki við að beita bolabrögðum Rafmagnslaust í miðbænum Rýmri heimildir fyrir rafsendibíla „Við ákváðum að láta drauminn rætast“ Biður fólk að panta ekki gáma hjá AB gámum Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vita ekki hverjir skulda Andlát: Ingimar Sveinsson Svikahrappurinn var handtekinn í nótt Heilu vinkvennahóparnir teknir kyrkingartaki Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Draga úr tölvunotkun og snúa aftur í bækurnar „Gæti orðið eins konar húsfluga með tímanum“ Biður fólk að panta ekki gáma hjá AB gámum Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Af hverju er fólk að selja miðana sína? Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Andlát: Þráinn Eggertsson Aflýstu 17. júní vegna veðurs „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn Nýjast á mbl.is » Hola í höggi í fjórða skipti „Erum ekki í þessu bara til að vera með“ Trump: Það er verið að okra á viðskiptavinum Vilja 10 ára verndaráætlun fyrir laxinn Jarðskjálfti 3,3 að stærð: Enginn gosórói Umræðan Farsæld Íslands byggist á verðmætasköpun Börnin þurfa nú að bíða lengur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert NATO prófar nýja tækni á Íslandi Væta víða um land fram undan Biður fólk að panta ekki gáma hjá AB gámum Kaupmáttur aukist Mest lesið Í gær Í vikunni Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Það var erfiðasti tími lífs míns“ Segir Íslendinga ekki þurfa að óttast Taka upp gjaldskyldu við Smáralind Andlát: Hjörtur Guðnason Kannast ekki við að beita bolabrögðum Rafmagnslaust í miðbænum Rýmri heimildir fyrir rafsendibíla „Við ákváðum að láta drauminn rætast“ Biður fólk að panta ekki gáma hjá AB gámum Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vita ekki hverjir skulda Andlát: Ingimar Sveinsson Svikahrappurinn var handtekinn í nótt Heilu vinkvennahóparnir teknir kyrkingartaki Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Draga úr tölvunotkun og snúa aftur í bækurnar „Gæti orðið eins konar húsfluga með tímanum“ Biður fólk að panta ekki gáma hjá AB gámum Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Af hverju er fólk að selja miðana sína? Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Andlát: Þráinn Eggertsson Aflýstu 17. júní vegna veðurs „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn

Share this article