Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hulda Clara byrjar tímabilið afar vel og stefnir langt

Read Full Article →

Hulda Clara, sem er nýliði á mótaröðinni, bar sigur úr býtum á tékkneska áskorendamótinu í vikunni. Hún er sérlega glöð með spilamennskuna og þakklát fyrir að fá að koma heim til Íslands eftir þennan góða árangur. „Ég spilaði mjög stöðugt golf. Allir hringirnir á pari. Ég fékk þrjá skolla og þrjá fugla sem ég held ég hafi aldrei gert áður. Og að fá að koma hingað heim beint eftir mót er frábært.“ Hulda Clara hefur spilað vel í upphafi tímabilsins og situr í þriðja sæti á mótaröðinni eftir fyrstu fjögur mótin. Það er afar góð byrjun og gefur góð fyrirheit um það sem fram undan er. „Það eru fjögur mót búin og þetta eru 19 mót á mótaröðinni. Ég held ég sleppi 2–3 mótum en ég verð mestmegnis erlendis að keppa í sumar. Markmiðið er að fá þátttökurétt á Evrópumótaröðinni, ég er á góðri leið núna.“

Share this article