Innlent | mbl | 15.6.2026 | 12:24 | Uppfært 14:16 Myndskeið: Svona mun ný Þjóðarhöll líta út Íslenskir aðalverktakar ÍAV ásamt ASK arkitektum, COWI, LPO arkitektum, Íslofti, EOH og Landhönnun urðu hlutskarpastir. Tölvuteikning/Þjóðarhöll ehf Setja bókamerki Tengdar fréttir Þjóðarhöll Tillögur um nýja höll liggja fyrir Borga tvo milljarða fyrir lóð Þjóðarhöll ekki í umhverfismat „Við erum ekki að finna upp hjólið“ „Betra að hafa kjaftfulla höll heldur en hálftóma“ » Fleiri tengdar fréttir Komin er mynd á nýja fyrirhugaða Þjóðarhöll, fjölnota íþróttamannvirki sem mæta mun kröfum nútímans með aðstöðu fyrir landslið Íslands, íþróttafélög og almenning til íþróttaiðkunar, áhorfs og samveru. Fyrir hönd ríkis og Reykjavíkurborgar hefur Þjóðarhöll ehf. valið tilboð Íslenskra aðalverktaka hf. að hönnun og byggingu hinnar nýju Þjóðarhallar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stjórnarráði Íslands , þar sem jafnframt segir að tilboðið hljóði upp á 16,8 milljarða íslenskra króna með virðisaukaskatti. Eins og áður hefur verið greint frá var höllinni fundinn staður í Laugardalnum en mannvirkið er hugsað fyrir innanhússíþróttir og fleiri viðburði eins og tónleikahald. Einnig verður skrifstofurými í húsinu. Frétt af mbl.is Bjartsýnn á nýja þjóðarhöll Tvö tilboð bárust Árið 2024 var auglýst eftir teymum til að taka verkefnið að sér og annast þar með framkvæmdina frá upphafi til enda; allt frá hönnun að fullkláruðu mannvirki. Í forvalinu voru þrjú teymi valin til þátttöku í samkeppnisútboði þaðan sem tvö endanleg tilboð bárust, annars vegar frá teymi Ístaks hf. og hins vegar frá teymi Íslenskra aðalverktaka hf. Íslenskir aðalverktakar ÍAV ásamt ASK arkitektum, COWI, LPO arkitektum, Íslofti, EOH og Landhönnun urðu hlutskarpastir. Hitt teymið sem fór alla leið í ferlinu var myndað af Ístak, Eflu ehf., Nordic Office of Architecture og Populus. Tölvuteikning/Þjóðarhöll ehf Laugardalshöllin komin til ára sinna Áður hefur verið greint frá því að stærð hallarinnar verði allt að 19.000 fermetrar og rúmi 8.600 manns í sæti og allt að 12.000 manns á standandi viðburðum. Laugardalshöllin er komin til ára sinna og uppfyllir ekki lengur þau skilyrði sem evrópsku samböndin í körfuknattleik og handknattleik setja til að leikir í undankeppnum stórmóta geti farið þar fram. Fyrir vikið hafa íslensku landsliðin í þessum greinum leikið landsleiki á Íslandi í krafti undanþága frá FIBA Euorpe og EHF í mörg ár og hefur það hangið á því að íslensk stjórnvöld höfðu gefið formlegt loforð um að bætt yrði úr húsakosti á Íslandi. Ef ekkert yrði að gert þyrftu landsliðin að leika heimaleiki sína á erlendri grundu. Einn riðill á HM karla í handknattleik árið 2031 fer fram á Íslandi og verða leikirnir því í nýrri þjóðarhöll ef fram heldur sem horfir. Frétt af mbl.is Byggingaráform um Þjóðarhöll óbreytt Tölvuteikning/Þjóðarhöll ehf Tölvuteikning/Þjóðarhöll ehf Tækifæri til hagræðingar Tilboðið er að fjárhæð 16,8 milljarða króna, með virðisaukaskatti. Tækifæri til hagræðingar eru þó til staðar samhliða samningagerð og fullnaðarhönnun án þess að breyta kröfum um gæði og notagildi. Ekki liggur fyrir hvenær til stendur að framkvæmdum ljúki og höllin komist í gagnið, en framkvæmdir hafa tafist allvel frá upphafi framkvæmda. Mennta- og barnamálaráðuneytið fer með málið fyrir hönd ríkisins með aðkomu fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir annaðist úboðsferlið. Frétt af mbl.is Framkvæmdir hefjast árið sem þeim átti að ljúka Tölvuteikning/Þjóðarhöll ehf Tölvuteikning/Þjóðarhöll ehf Rís í hjarta Laugardals Höllin mun koma til með að rísa í hjarta Laugardals, sunnan Laugardalshallar, með góðri tengingu við borgarlínu, göngu- og hjólaleiðir og nærliggjandi mannvirkin Laugardalshöll og Frjálsíþróttahöll. Höllin verður aðgengileg öllum og gæti til dæmis orðið vettvangur lýðheilsuverkefna og samkomustaður íþróttafólks og almennings með tilheyrandi veitingarekstri. Tölvuteikning/Þjóðarhöll ehf Samkvæmt reglum opinberra innkaupa stendur nú yfir lögbundinn biðtími þar sem tilboðsgjöfum gefst kostur á að kynna sér niðurstöðuna og eftir atvikum gera athugasemdir eða bera ákvörðunina undir kærunefnd útboðsmála áður en heimilt er að ganga frá samningi. Að samningsgerð lokinni hefst undirbúningur framkvæmda. Tölvuteikning/Þjóðarhöll ehf Tengdar fréttir Þjóðarhöll Tillögur um nýja höll liggja fyrir Borga tvo milljarða fyrir lóð Þjóðarhöll ekki í umhverfismat „Við erum ekki að finna upp hjólið“ „Betra að hafa kjaftfulla höll heldur en hálftóma“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Hver eru heildarlaun Hildar borgarstjóra? Hafa afhent 10.000 Teslur Laun æðstu ráðamanna hækka minna Erlendir ferðamenn lentu í árekstrinum Myndskeið: Svíar léku á als oddi Umræðan Fatlað fólk í samgönguáætlun Sum ríki greiða til ESB, önnur þiggja Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Svar ráðherra „jaðri við rugl“ Einn stunginn með hnífi og þrír handteknir Full ástæða til þess að vera á varðbergi Tugmilljarða áhrif á bankana fjóra Mest lesið Í gær Í vikunni Tugmilljarða áhrif á bankana fjóra Árásin í húsi fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd Svar ráðherra „jaðri við rugl“ Einn stunginn með hnífi og þrír handteknir Ráðherra setur reglur um síma Ríkið sakað um að brjóta samkomulag Formaðurinn veikur heima í atkvæðagreiðslu Vill fá íbúðir fyrir ofan Dönsku krána Myndskeið: Kötturinn Rambó elskar að fara í sturtu Óvenjumargir óku inn Austurstrætið Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Færa kóða á gult: Hrinan líklega sú kröftugasta Strætó illa farinn eftir árekstur Vilja stöðva íslenskar sérlausnir Full ástæða til þess að vera á varðbergi „Þetta verður svona algjört lífsgæðasvæði“ „Ég var í nýjum skóm í barnastærð“ Landhelgisgæslan aðstoðaði við leit Þrír slösuðust í árekstri á Norðurlandi Óku á göngugötu í miðbænum Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Óttast er að hundruð missi vinnuna Meirapróf til að aka strumpastrætó Gjaldtaka aukin með innviðafélagi Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum Nýjast á mbl.is » Hver eru heildarlaun Hildar borgarstjóra? Hafa afhent 10.000 Teslur Laun æðstu ráðamanna hækka minna Erlendir ferðamenn lentu í árekstrinum Myndskeið: Svíar léku á als oddi Umræðan Fatlað fólk í samgönguáætlun Sum ríki greiða til ESB, önnur þiggja Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fleiri leiðir inn á húsnæðismarkað Umfangsmikil árás gerð á Kænugarð Svar ráðherra „jaðri við rugl“ Læknir og dýralæknir rífa í stálið í Litáen Mest lesið Í gær Í vikunni Tugmilljarða áhrif á bankana fjóra Árásin í húsi fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd Svar ráðherra „jaðri við rugl“ Einn stunginn með hnífi og þrír handteknir Ráðherra setur reglur um síma Ríkið sakað um að brjóta samkomulag Formaðurinn veikur heima í atkvæðagreiðslu Vill fá íbúðir fyrir ofan Dönsku krána Myndskeið: Kötturinn Rambó elskar að fara í sturtu Óvenjumargir óku inn Austurstrætið Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Færa kóða á gult: Hrinan líklega sú kröftugasta Strætó illa farinn eftir árekstur Vilja stöðva íslenskar sérlausnir Full ástæða til þess að vera á varðbergi „Þetta verður svona algjört lífsgæðasvæði“ „Ég var í nýjum skóm í barnastærð“ Landhelgisgæslan aðstoðaði við leit Þrír slösuðust í árekstri á Norðurlandi Óku á göngugötu í miðbænum Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Óttast er að hundruð missi vinnuna Meirapróf til að aka strumpastrætó Gjaldtaka aukin með innviðafélagi Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum