Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Al­vot­ech efnir til 15 milljarða hluta­fjárút­boðs

Read Full Article →

Alvotech hefur ákveðið að efna til sölutryggðs hlutafjárútboðs í Bandaríkjunum þar sem líftæknifyrirtækið gerir ráð fyrir að selja nýtt hlutafé að fjárhæð 125 milljónir dala, eða um 15,6 milljarða króna, að því er kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar. Félagið hefur jafnframt veitt umsjónaraðilum útboðsins heimild til þess að kaupa til viðbótar allt að 15% bréfanna sem eru í boði á útboðsgenginu, innan 30 daga, að frádregnum afslætti og þóknun. Samhliða opna útboðinu gerir Alvotech ráð fyrir að gera áskriftarsamninga við tiltekna fjárfesta sem eru fagfjárfestar eða viðurkenndir gagnaðilar á Evrópska efnahagssvæðinu (EES). Þessum fjárfestum verða boðin bréf á sama gengi og gilda mun í almenna útboðinu. Tekið er fram að almenna útboðið í Bandaríkjunum sé ekki háð niðurstöðu lokaða útboðsins. „Ekki hefur verið tekin ákvörðun um skiptingu hluta milli þátttakenda í útboðinu í Bandaríkjunum og evrópsku fagfjárfestana, en hún mun taka mið af tilboðsgenginu.“ Alvotech segist ætla að nýta afrakstur af sölu hlutabréfanna til þess að fjármagna þróun nýrra hliðstæðna líftæknilyfja, í veltufé og til að standa straum af rekstrarkostnaði, þar á meðal til þess að vernda lyfjahugvit félagsins, almennra rekstrarútgjalda, fjárfestinga í fastafjármunum, kaupa á búnaði, í samstarfsverkefnum, forklínískum og klínískum rannsóknum, við vöruþróun, undirbúning markaðssetningar nýrra lyfja og til endurgreiðslu skulda eða endurfjármögnunar. Félagið segir útboðið vera háð markaðsskilyrðum og því sé ekki hægt að ábyrgjast niðurstöðu þess. Sameiginlegir umsjónaraðilar almenna útboðsins eru fjárfestingarbankarnir BofA Securities, Jefferies og Evercore ISI.

Share this article