Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Sækja allt að 20,6 milljarða á genginu 468 krónur

Read Full Article →

Alvotech hefur lokið sölutryggðu hlutafjárútboði í Bandaríkjunum og lokuðu útboði til fagfjárfesta á Evrópska efnahagssvæðinu, samkvæmt tilkynningu til Kauphallarinnar. Gengið í útboðunum var 3,75 dalir á hlut eða um 468 krónur á hlut miðað við miðgengi Seðlabankans. Útboðsgengið er um 11,7% lægra en 530 króna dagslokagengi félagsins í gær. Líftæknifyrirtækið gerir ráð fyrir að heildarandvirði hlutabréfanna í þessum útboðum verði um 152 milljónir dollara, eða tæpir 19 milljarðar króna. Þar af nemi heildarafrakstur af útboðinu í Bandaríkjunum, áður en tillit er tekið til afsláttar og þóknana, um 85 milljónum dala eða um 10,6 milljörðum króna. Ef umsjónaraðilar útboðsins í Bandaríkjunum nýta sér kauprétt sinn að fullu, nemur heildarandvirði útboðanna um 165 milljónir dala, eða um 20,6 milljarða króna, að undanskildum afslætti vegna sölutryggingar, þóknana og útboðskostnaðar. Til samanburðar kom fram í tilkynningu Alvotech í gær að félagið gerði ráð fyrir að andvirði bréfanna myndi nema um 125 milljónum dala eða um 15,6 milljörðum króna. Sjá einnig Al­vot­ech efnir til 15 milljarða hluta­fjárút­boðs Úthlutað var 22.666.667 almennum hlutum í hlutafjárútboðinu í Bandaríkjunum, sem gert er ráð fyrir að ljúki á morgun, að uppfylltum almennum skilyrðum. Félagið veitti jafnframt umsjónaraðilum útboðsins kauprétt til 30 daga að 3.400.000 bréfum á útboðsgenginu, að frádregnum afslætti vegna sölutryggingar og þóknana. Samhliða útboðinu hefur Alvotech gert áskriftarsamninga við tiltekna fagfjárfesta á Evrópska efnahagssvæðinu (EES). Félagið mun gefa út og úthluta þessum fjárfestum 17.826.666 almenna hluti á útboðsgenginu. Gert er ráð fyrir að þessum viðskiptum ljúki um 25. júní nk. „Alvotech hyggst nýta afrakstur af sölu hlutabréfanna til þess að fjármagna þróun nýrra hliðstæðna líftæknilyfja, í veltufé og til að standa straum af rekstrarkostnaði, þar á meðal til þess að vernda lyfjahugvit félagsins, almennra rekstrarútgjalda, fjárfestinga í fastafjármunum, kaupa á búnaði, í samstarfsverkefnum, forklínískum og klínískum rannsóknum, við vöruþróun, undirbúning markaðssetningar nýrra lyfja og til endurgreiðslu skulda eða endurfjármögnunar.“ Sameiginlegir umsjónaraðilar útboðsins í Bandaríkjunum eru fjárfestingarbankarnir BofA Securities, Jefferies og Evercore ISI.

Share this article