Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Alvotech blæs í sóknarlúðra

Read Full Article →

Daginn fyrir þjóð­hátíðar­daginn tilkynnti Alvotech um lok sölutryggðs hlutafjárútboðs í Bandaríkjunum og lokaðs útboðs til fagfjárfesta á Evrópska efnahagssvæðinu. Gengið í útboðunum var 3,75 dalir á hlut, eða um 468 krónur á hlut miðað við miðgengi Seðlabankans. Líftæknifyrirtækið gerir ráð fyrir að heildarandvirði hlutabréfanna í þessum útboðum verði um 165 milljónir dollara, eða um 20,6 milljarðar króna, að undanskildum afslætti vegna sölutryggingar, þóknana og útboðskostnaðar. Þar af nemi heildarafrakstur af útboðinu í Bandaríkjunum, áður en tillit er tekið til afsláttar og þóknana, um 98 milljónum dala eða um 12,2 milljörðum króna. Umsjónaraðilar útboðsins í Bandaríkjunum nýttu sér kauprétt sinn að 3,4 milljónum hluta að fullu. Til að lesa meira Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér. Verð frá 6.295 kr. á mánuði Kaupa áskrift

Share this article