Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Alvotech blæs í sóknarlúðra

Read Full Article →

Daginn fyrir þjóð­hátíðar­daginn tilkynnti Alvotech um lok sölutryggðs hlutafjárútboðs í Bandaríkjunum og lokaðs útboðs til fagfjárfesta á Evrópska efnahagssvæðinu. Gengið í útboðunum var 3,75 dalir á hlut, eða um 468 krónur á hlut miðað við miðgengi Seðlabankans. Líftæknifyrirtækið gerir ráð fyrir að heildarandvirði hlutabréfanna í þessum útboðum verði um 165 milljónir dollara, eða um 20,6 milljarðar króna, að undanskildum afslætti vegna sölutryggingar, þóknana og útboðskostnaðar. Þar af nemi heildarafrakstur af útboðinu í Bandaríkjunum, áður en tillit er tekið til afsláttar og þóknana, um 98 milljónum dala eða um 12,2 milljörðum króna. Umsjónaraðilar útboðsins í Bandaríkjunum nýttu sér kauprétt sinn að 3,4 milljónum hluta að fullu. Róbert Wessman, stofnandi og stjórnarformaður Alvo­tech, segir ástæður þess að ráðist var í fjármögnunina á ­þessum tímapunkti marg­þættar. „Í fyrsta lagi var markmiðið að styrkja lausafjárstöðu félagsins og ekki síst að fá fleiri ­öfluga fagfjárfesta inn í ­félagið. Vikurnar áður en fjármögnunin var í höfn hitti ég töluverðan fjölda fjárfesta, bæði í Bandaríkjunum sem og víða um Evrópu. Í samtölum skynjaði ég mikinn áhuga á félaginu, sérstaklega eftir að við sendum aftur inn umsóknir til Matvæla- og lyfjastofnunar Bandaríkjanna (FDA) um leyfi til markaðssetningar í Bandaríkjunum á hliðstæðum við líftæknilyfin Simponi, Simponi Aria (AVT05) og Eylea 2 mg (AVT06).“ Úthlutað var 22.666.667 almennum hlutum í hlutafjárútboðinu í Bandaríkjunum. Alvotech veitti jafnframt umsjónaraðilum útboðsins kauprétt til 30 daga að 3.400.000 bréfum á útboðsgenginu, að frádregnum afslætti vegna sölutryggingar og þóknana, og tilkynntu þeir í síðustu viku að þeir myndu nýta þessa kauprétti að fullu. Samhliða útboðinu gerði félagið áskriftarsamninga við tiltekna fagfjárfesta á Evrópska efnahagssvæðinu. Félagið mun gefa út og úthluta þessum fjárfestum 17.826.666 almenna hluti á útboðsgenginu. Gert er ráð fyrir að viðskiptunum ljúki í þessari viku. Alvotech hyggst nýta afrakstur af sölu hlutabréfanna til þess að fjármagna þróun nýrra hliðstæðna líftæknilyfja, í veltufé og til að standa straum af rekstrarkostnaði, þar á meðal til þess að vernda lyfjahugvit félagsins, almennra rekstrarútgjalda, fjárfestinga í fastafjármunum, kaupa á búnaði, í samstarfsverkefnum, forklínískum og klínískum rannsóknum, við vöruþróun, undirbúning markaðssetningar nýrra lyfja og til endurgreiðslu skulda eða endurfjármögnunar. Eftirspurnin vonum framar Róbert segir hraðan vöxt félagsins fram til þessa, sem og vaxtarmarkmið til fram­tíðar, hafa vakið áhuga fjárfesta. „Alvotech er í miklum vexti og er með mikinn fjölda lyfja í þróun. Á slíkri vegferð skiptir vitaskuld miklu máli að félagið sé vel fjármagnað og ég tel félagið aldrei hafa verið jafn vel fjármagnað og það er í dag,“ segir hann. Ekki síður var að sögn Róberts ánægjulegt að með hlutafjáraukningunni bætist töluverður fjöldi nýrra fagfjárfesta frá Bandaríkjunum við hluthafahópinn, sem margir sérhæfi sig í fjárfestingum í heilbrigðisgeiranum. „Það mun án efa skila sér í aukinni veltu á bréfunum og tryggja að verðmyndunin á þeim til lengri tíma sé eðlileg. Þetta er einn af jákvæðum fylgifiskum þess að fá þessa aðila að borðinu sem þekkja svona rekstur út og inn.“ © Aðsend mynd (AÐSEND) Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu sem kemur út í fyrramálið. Áskrifendur geta lesið viðtalið í heild hér og blaðið hér .

Share this article