Jón Þór Hauksson mun stýra karlaliði Stjörnunnar í sínum fyrsta leik í kvöld. Liðið fær Breiðablik í heimsókn í kvöld. Stjarnan tilkynnti um helgina að Jón Þór myndi taka við af Jökli Elísabetarsyni en liðið hefur átt strembna byrjun á tímabilinu. Liðið er í níunda sæti eftir níu umferðir og er það talsvert undir væntingum liðsins. „Það er mjög stuttur aðdragandi að þessu og stutt í leik. Það er lítill tími til að undirbúa það. Verkefnið er auðvitað bara að koma liðinu svolítið upp á tærnar og snúa genginu við, augljóslega. Það er fyrsta verkefnið.“ Jón Þór er kunnugur staðháttum í Garðabænum því hann var aðstoðarþjálfari liðsins frá 2017–2018. „Ég er spenntur fyrir verkefninu, spenntur að vinna með liðinu og ekki síst bara að vera kominn hérna aftur þar sem ég átti skemmtilega tíma og kynntist mörgu góðu fólki.“ Afturelding fallöxi? Jökull Elísabetarson hætti þjálfun liðsins eftir 3-1 tap gegn Lengjudeildarliði Aftureldingar í 8-liða úrslitum bikarsins á dögunum. Það svipar til þess þegar Jón Þór sagði skilið við ÍA á síðustu leiktíð. Þá sat liðið á botni Bestu deildarinnar og tapaði einmitt fyrir Aftureldingu 4-1. „Fyrir nákvæmlega ári síðan stóð ég í þessum sömu sporum eftir slæmt tap fyrir Aftureldingu. Þar var farið í þjálfaraskipti eftir það þannig það eru líkindi í því. En fyrir mig er spenningur að vera kominn aftur hingað. Ég á góðar minningar hérna og vonandi getum við skapað fleiri.“ Jón Þór Hauksson er tekinn við þjálfun karlaliðs Stjörnunnar í fótbolta. Hann stýrir liðinu í sínum fyrsta leik í kvöld þegar liðið spilar við Breiðablik. Hann segist spenntur fyrir verkefninu.