Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Jón Þór látinn fara - sá annar í sumar í Garðabæ

Read Full Article →

Stjarnan óskaði eftir því að Jón Þór Hauksson myndi láta af störfum sem þjálfari liðsins í Bestu deild karla í fótbolta. Áður hafði Jökull Elísabetarson hætt þjálfun liðsins. Jón Þór hefur stýrt liðinu frá 13. júní og stýrði því liðinu í 68 daga. Alls stýrði hann Stjörnunni í 13 leikjum, bæði í Bestu deildinni og í undankeppni Sambandsdeildarinnar. Síðasti leikur hans með liðið var 3-1 tap gegn Fram á mánudaginn var. Nú er Stjarnan í 9. sæti en þrír leikir eru fram að tvískiptingu deildarinnar í efri og neðri hluta. Stjarnan er fjórum stigum frá efri hlutanum og fimm stigum frá fallsæti eins og er. Stjarnan hefur ekki tilkynnt um arftaka en næsti leikur liðsins er á sunnudag gegn Þór sem er í botnsæti deildarinnar. Næstu þrír leikir fram að skiptingu Stjarnan - Þór Breiðablik - Stjarnan Stjarnan - ÍBV Árangur Jóns: 5 sigurleikir - 5 tapleikir - 3 jafntefli - 38% sigurhlutfall. Stjarnan sló út Víking Götu í 1. umferð undankeppni Sambandsdeildar en datt út gegn Ilves frá Finnlandi í næstu umferð.

Share this article