Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Opnar sig um stormasama tíma og sögusagnir hjá Stjörnunni: „Eitt allsherjar fíaskó“

Read Full Article →

Jón Þór Hauksson var nýverið látinn fara sem þjálfari Stjörnunnar í Bestu deild karla í fótbolta. Jón Þór var annar þjálfarinn sem var rekinn frá liðinu í sumar og stýrði hann Garðbæingum aðeins í 68 daga. Skagamaðurinn lýsir tíma sínum sem algjöru fíaskói og segir það hafa verið ljóst frá fyrsta degi að hann væri ekki velkominn í Garðabæ. Þá segir hann að það þurfi illan hug til að spinna upp sögusagnir sem fóru á kreik í kjölfar þess að hann var látinn fara. Hann segir sögusagnir skammarlegar fyrir félagið og opnar sig um veikindi sín. Jón Þór ræddi við Gunnlaug Jónsson fyrir Sportrásina á Rás 2. Viðtalið allt má hlusta á hér í hlaðvarpsútgáfu á Íþróttavarpinu. Jón Þór Hauksson þjálfaði Stjörnuna í 68 daga í Bestu deild karla í fótbolta. Jón Þór segir að hann hafi upplifað frá fyrsta degi að hann væri ekki velkominn og lýsir tímanum sem algjöru fíaskói. Meðal þess sem Jón Þór ræðir: Sögusagnir eftir brottrekstur skammarlegar fyrir félagið Eitrað andrúmsloft í félaginu Ráðningin og allt í kringum hana er fíaskó Var ekki velkominn frá fyrsta degi Liðið var ekki í formi – starfsliðið kom honum á óvart Breytingar í þjálfarateyminu – fyrstu rauðu flöggin Trúir því að saga um að leikmenn hafi ekki ætlað að mæta í leik sé uppspuni Andrúmsloftið gífurlega skrýtið eftir sigurleik Sögusagnir á kreiki um skrítna æfingu Söknuðu leikmenn Jökuls? Þjálfaraskiptin eitt allsherjar fíaskó Jón Þór telur að þjálfaraskiptin í heild sinni hafi verið fíaskó frá því að Jökull Elísabetarson var látinn fara og segist hafa fengið skítinn í fangið frá fyrsta degi. „Þetta verður náttúrulega bara og við skulum bara orða hlutina alveg eins og þeir eru. Þegar þjálfaraskiptin eru gerð er það bara eitt allsherjar fíaskó. Það er bara illa staðið að þeim þjálfaraskiptum, það verður bara að viðurkennast og segjast alveg eins og er.“ Stjórnarmenn í félagi geri líka hreint fyrir sínum dyrum gagnvart leikmannahópi og öðrum þegar þeir fari í breytingar en það þurfi líka að greina vandamálin og leysa þau. Það hafi ekki verið gert hjá Stjörnunni. „Það er ekkert nóg bara að henda einhverjum einum manni út og allt lagist. Það virkar ekki þannig.“ „Ég finn það bara nánast frá fyrsta degi að ég er ekki velkominn. Í umhverfinu öllu. Innan félagsins þá finn ég það mjög fljótlega að hjá einhverjum hluta fólksins er ég strax málaður upp sem vondi kallinn í þessu.“ „Það er hlutur sem þú finnur þegar þú ert að vinna með liði og leikmönnunum. Þú finnur það strax hverjir eru móttækilegir og hverjir eru það ekki. Hverjir eru í vörn og hvernig viðmótið er, líkamstjáning og annað. Ég fann þetta strax og ég held ég sé ekki að uppljóstra neinu leyndarmáli. Ég held að þetta sé bara almenn vitneskja í kringum klúbbinn.“ Hvernig gekk Stjörnunni undir stjórn Jóns? Stjarnan var í 9. sæti og nýfallin úr bikarkeppni eftir tap gegn Aftureldingu þegar Jón Þór tók við. Alls stýrði hann Stjörnunni í 13 leikjum, bæði í Bestu deildinni og í undankeppni Sambandsdeildarinnar. Síðasti leikur hans með liðið var 3-1 tap gegn Fram á mánudaginn var. Nú er Stjarnan í 9. sæti en þrír leikir eru fram að tvískiptingu deildarinnar í efri og neðri hluta. Stjarnan er fjórum stigum frá efri hlutanum og fimm stigum frá fallsæti eins og er. 5 sigurleikir - 5 tapleikir - 3 jafntefli - 38% sigurhlutfall. Stjarnan sló út Víking Götu í 1. umferð undankeppni Sambandsdeildar en datt út gegn Ilves frá Finnlandi í næstu umferð eftir vítaspyrnukeppni. Ótrúlegt að veikindum sé snúið upp í ljótar sögur Ýmsar sögur hafa verið á reiki um síðustu helgi Jóns Þórs með liðið, varðandi fjarveru hans á æfingum meðal annars. Jón Þór segir í viðtalinu að skammarlegt sé fyrir félagið að veikindi sem hafa herjað á hann verði að ljótum sögum um að hann hafi verið í annarlegu ástandi. „Ég er með undirliggjandi veikindi og hef átt í erfiðleikum með magann á mér. Það er eitthvað sem ég erfði frá föður mínum heitnum. Ég er veikur fyrir í maga og með magasár og bólgur. Hann hafi fljótlega eftir að hann tók við Stjörnunni farið að finna meira fyrir veikindunum og á föstudegi fyrir leik gegn Fram var hann slæmur. Í undirbúningi fyrir æfingu segi hann við samstarfsfélagana að best sé að hann fari beint heim eftir æfinguna af því hann sé að verða slappur. Hann nær svo ekki að klára æfinguna og fer fyrr heim. „Það fór nú ekki betur en svo að ég rétt komst inn í klefa uppi í Miðgarði áður en uppköstin byrjuðu. Ég keyri heim upp á Akranes við hálf illan leik.“ Jón Þór hefur lent í veikindunum áður og segir þau magnast þegar álag er mikið. Hann hafi til dæmis misst af leik með ÍA 2023 vegna þeirra. „Þá var komin sýking í magann. Þetta er auðvitað bara álag og stress og spenna sem getur líka triggerað þetta, skilst mér.“ Veikindin hafi haldið Jóni Þór frá æfingu á laugardeginum en á sunnudeginum segir hann hópnum frá. Út frá þessu spruttu fram sögusagnir þegar Jón Þór var svo látinn fara. „Það er náttúrlega ótrúlegt að þessu sé snúið upp í bara ljótar sögur. Það er auðvitað bara skammarlegt fyrir félagið að minn heiður og mín heilindi séu dregin í efa í starfi. Að ég hafi ekki sinnt starfinu mínu og verið fjarverandi á æfingum, og farið snemma heim af æfingum. Það er tilkomið vegna þessara veikinda, að undanskilinni einni jarðarför.“ „Það þarf illan hug til að búa til svona sögur upp úr þessu. Það er alveg ljóst að það eru einhverjir aðilar innan Stjörnunnar sem eru tilbúnir til þess.“ Öruggur með að þetta komi innan frá - Lak samstarfsmaður klippu? Jón Þór segir ljóst að sögusagnirnar komi innan félagsins. „Það er enginn utan Stjörnunnar sem veit af þessum fjarvistum. Ég veit ekki hvaða ástæða ætti að vera fyrir því að menn viti hvenær nákvæmlega ég er fjarverandi af þessum æfingum. Jón Þór fékk gult spjald fyrir að kasta brúsa í leik og Stúkan, markaþáttur á Stöð 2 Sport, tók atvikið fyrir. Hann er ósáttur við að tveggja manna samtali milli hans og samstarfsmanns hafi verið lekið. „Mér finnst það skrýtið að þetta sé nákvæmlega sama klippa og var í sjónvarpinu kvöldið áður. Hvort það sé frá okkur komið eða hvernig það mál liggi. Hann útskýrir bara sitt mál og þar með var málinu lokið.“ Telur hann að starfsmaður Stjörnunnar hafi lekið klippunni? „Ég held að það þurfi ekkert neina hagfræðinga til að leggja mat á það. Ég er ósáttur við það að fotbolti.net skuli hafa heimildir fyrir því að ég hafi sakað samstarfsmann um að hafa lekið þessum upplýsingum, í tveggja manna tali.“ Ætluðu menn ekki að mæta í leik? Sögusagnir voru einnig á kreiki um að ákveðnir leikmenn hafi ekki ætlað að mæta í leik undir stjórn Jóns Þórs. Jón Þór telur að það sé uppspuni og heyrði fyrsta af málinu í fréttum. „Ég las það í fréttum og veit annars ekkert um það mál. Ef satt reynist þá í mínum bókum er það ótrúlegt dæmi ef það þarf að sannfæra leikmann um að mæta í leik.“ „Ég sá þetta fyrst í fréttum eftir að ég var rekinn og veit ekkert um þetta mál. Ég hafði aldrei heyrt af því áður...Ég trúi því bara að þetta sé uppspuni og eigi sér ekki stað í raunveruleikanum, þessi saga.“ Í sjokki með umgjörðina - Vissi ekki að það vantaði styrktar- og sjúkraþjálfara Jón Þór segir ljóst að sumarið hafi verið erfitt hjá Stjörnunni. Það kom hins vegar á óvart að enginn styrktar-, sjúkra- eða fitnessþjálfari væri starfandi hjá félaginu þegar hann tók við. „Staðan var erfið. Sumarið var búið að vera þungt og gengið erfitt. En á sama tíma var þetta ótrúlega spennandi leikmannahópur og lið. Þannig að ég gekk bara bratt til leiks.“ „Það hefur væntanlega yfir langan tíma eitthvað misfarist hjá Stjörnunni í undanfaranum. Ég er svo sem ekki rétti maðurinn til að tjá mig um það. Það þurfa einhverjir aðrir að svara fyrir það. Samt sem áður þá eru engar tilviljanir í fótbolta. Það er ástæða fyrir því að liðið á þeim tíma var statt með 10 stig eftir 10 leiki, sem er engan veginn í samræmi við þær væntingar sem gerðar voru til liðsins. Það er oft þannig að þegar hlutirnir ganga ekki alveg upp þá geta lið og leikmenn fundið sig í snúinni og erfiðri stöðu.“ „Það sem kom mér pínu á óvart og ég var eiginlega í pínu sjokki með þegar ég byrjaði í Stjörnunni var að það reyndist enginn styrktarþjálfari starfandi í klúbbnum. Það er enginn sjúkraþjálfari starfandi í klúbbnum og enginn fitnessþjálfari. Komandi úr þeim verkefnum sem ég hafði áður verið í þá fannst mér það bara í hrópandi ósamræmi við það að Stjarnan ætlaði sér að vera topp lið á Íslandi og í titilbaráttu þetta tímabilið.“ Missti hann hópinn eftir sigur gegn Keflavík? Jón Þór segir andrúmsloftið hafa verið farið að verða skrítið og segir meðal annars frá því að liðsmenn hafi ekki fagnað sigri á Keflavík nýlega. „Keflavík er búið að vera frábært í sumar og hefur átt mjög gott sumar. Þetta er lið með mikið sjálfstraust og mikinn meðbyr, þannig að það var ljóst að þetta yrði alltaf erfiður leikur.“ Stjarnan vann 1-0 eftir leik sem einkenndist af dálitlu stressi undir lokin. Stemingin í klefanum hafi hins vegar verið eins og liðið hefði tapað 4-0. „Andrúmsloftið var mjög skrítið eftir þann leik. Það var mjög skrítið.“ Fyrstu rauðu flöggin - Fékk ekki aðstoðarmann Jón Þór vildi fá aðstoðarmann með sér eftir að Hrannar Bogi Jónasson lét af störfum en fann fyrir litlum stuðningi við hans hugmyndir. Jón Þór átti fundi með mögulegum aðstoðarmönnum en það var skammt í næstu leiki, þar sem Stjarnan var á leið í Evrópuleiki. „Ég fæ ekkert rosalega mikinn stuðning við þær hugmyndir sem ég vildi fá inn í félagið á þessum tíma og mér við hlið. Þar í raun og veru koma kannski fyrstu rauðu flöggin fram.“ Jón Þór segir að honum hafi ekki verið treyst til að finna starfskrafta í þessar stöður. „Hvort sem mér er ekki treyst fyrir því eða hvort þetta sé fjárhagslega ekki mögulegt, þá mætti ég algjöru áhugaleysi gagnvart því. En ég gerði þeim það alveg ljóst frá fyrsta degi að faglega séð og til þess að geta titlað sig toppklúbb þyrftu þessir hlutir að vera í lagi.“ Söknuðu leikmenn Jökuls? Jökull Elísabetarson var á sínu þriðja tímabili með liðið áður en hann var látinn fara. Það var ljóst að hann hafði tengst leikmönnum sínum sterkum böndum. Jón Þór fann fyrir því. „Ég fann fyrir því frá fyrsta degi. Það fór ekki fram hjá neinum sem fylgist með fótbolta að sú var raunin.Svo sem ekkert athugavert við það. Ég meina Jökull er er af því sem ég hef kynnst honum bara góður drengur og hörku öflugur þjálfari.“ „Þetta var mikið reiðarslag fyrir liðið og leikmannahópinn, suma hverja. Ég raun og veru geng inn í það og ber virðingu fyrir því“ Veit ekki ástæðuna fyrir því að hann var rekinn og hljóp út Jón Þór veit ekki hvers vegna hann var rekinn og segir að endalokin hafi átt sér stuttan aðdraganda. Stjórnin átti fund með leikmönnum og Jón Þór lét þar heyra í sér. Á fundinum átti að ræða skemmtidag og mögulegt golfmót. „Ég svaraði bara heiðarlega. Það er augljóst að einhver gagnrýni hefur átt sér stað á þeim fundi frá leikmönnum til stjórnar. Það er auðvitað bara í svona ástandi eins og Stjörnuliðið hefur verið í sumar.“ Jón Þór segir að það séu nokkrar leiðir til að trekkja lið í gang sem hefur leikið undir væntingum. Af orðum hans má ráða að leikmannahópurinn var ekki ánægður með hvernig hann skipulagði æfingar. „Fyrir æfingu á fimmtudaginn er mér tilkynnt að ég sé rekinn. Ég var svo sem ekkert að lengja það neitt. Ég var bara rekinn og skrifaði undir plaggið og hljóp út.“ Það hafi þó komið honum á óvart að vera rekinn eftir nokkrar vikur, hafandi tekið við á miðju tímabili. Andrúmsloftið hafi hins vegar verið orðið neikvætt. „Það voru klár mistök hjá mér að taka við Stjörnunni en sennilega mistök sem ég myndi gera aftur og aftur. Mig óraði ekki fyrir stöðunni sem var komin upp í klúbbnum. Það er öllum ljóst að það er mikil gjá á milli fólksins í Garðabæ, stuðningsmanna, leikmannahópsins og stjórnar. Það er mikil gjá á milli þessara hópa sem myndar að mörgu leyti eitrað andrúmsloft í félaginu.“ „Ég gerði þau mistök að taka þetta verkefni að mér og náði ekki að vinna það á þann hátt sem ég vildi vinna það. Ég verð bara að taka afleiðingunum af því.“ Eftir stendur spurningin - mun Jón Þór þjálfa aftur? „Það er mér ekki efst í huga akkúrat núna. Núna skiptir mestu máli að hlúa vel að mér og minni fjölskyldu og ná góðri heilsu,“ sagði hann að lokum.

Share this article