Rekstrartekjur Ankeri Solutions, sem býr til og þróar skýjalausnir fyrir gámaskipaflutningafyrirtæki, námu 390 milljónum króna í fyrra. Þar af voru sölutekjur 284 milljónir króna og jukust um 30% milli ára. Ankeri, sem var stofnað árið 2016, þjónustar bæði skipaeigendur sem reka flutningaskip og útgerðaraðila sem leigja til sín skip. Félagið opnaði nýlega útibú í Singapúr. Í skýrslu stjórnar í nybirtum ársreikningi félagsins segir að fjárfesting í mannauði, þróun, sölu- og markaðsinnviðum hafi haldið áfram og jókst rekstrarkostnaður um 21% frá fyrra ári og nam 418 milljónum króna í fyrra. Laun og verktakagreiðslur námu 83% af heildarkostnaði og meðalfjölda stöðugilda fjölgaði um þrjú milli ára. Launa- og rekstrarkostnaður Ankeris fellur að mestu til vegna þróunar, eða tæp 70%, og nam þróunarkostnaður 281 milljón árið 2025. Félagið eignfærði þróunarkostnað að fjárhæð 182 milljónir króna í fyrra. EBITDA-afkoma félagsins var neikvæð um tæpar 28 milljónir króna. EBIT-afkoman, sem tekur tillit til eignfærðs þróunarkostnaðar var jákvæð um 51 milljón króna. Hagnaður eftir skatta nam 54,4 milljónum króna. Hluthafar í lok árs voru þeir sömu og í upphafi árs en stærsti hluthafinn er sérhæfði vísissjóðurinn Frumtak III sem á 29% í félaginu. Kristinn A. Aspelund, framkvæmdastjóri félagsins, og Leifur A. Kristjánsson fara hvor um sig með 24% hlut í gegnum félögin Aspelund ehf. og Guerrero ehf. Nýsköpunarsjóðurinn Kría á 14% hlut og Brekkubyggð ehf., félag í eigu Guðborgar Auðar Guðjónsdóttur og Hermanns Kristjánssonar, á 9% hlut. Stjórn félagsins leggur til að enginn arður verði greiddur og að hagnaður ársins verði fluttur til næsta árs.