Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Bláa lónið og Arctic Adventures vilja sameinast

Read Full Article →

Forsvarsmenn Bláa lónsins og Arctic Adventures hafa skrifað undir samkomulag um samruna fyrirtækjanna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Jafnframt kemur fram að Bláa lónið hafi hafið formlegan undirbúning að skráningu félagsins á íslenskan hlutabréfamarkað. Landsbankinn og Fossar fjárfestingarbanki eru umsjónaraðilar útboðsins. Samkomulagið er gert með fyrirvara um áreiðanleikakönnun á báðum félögum, samþykki Samkeppniseftirlitsins og samþykki hluthafa. Haft er eftir Sigríði Margréti Oddsdóttir, forstjóra Blá lónsins að kaup á Arctic Adventures séu mikilvægt skref í átt fyrirtækisins. Risi í ferðaþjónustu Arctic Adventures er eitt stærsta ferðaþjónustufyrirtæki landsins. Félagið rekur meðal annars áfangastaðina Into the Glacier í Langjökli, Lava Tunnel í Raufarhólshelli, Kerið í Grímsnesi og aðstöðu við Fjaðrárgljúfurvið Kirkjubæjarklaustur. Þá rekur félagið þrjú hótel. Bláa lónið hefur sömuleiðis útvíkkað starfsemi sína síðustu árin og aukið við hótelrekstur sinn. Félagið byggir nýtt hótel og baðlón í Þjórsárdal sem verður fellt inn í Rauðukamba. Samanlagðar tekjur félaganna voru 34,3 milljarðar króna í fyrra árið 2025. Í fyrra undirrituðu forsvarsmenn Arctic Adventures og Kynnisferða samkomulag um sameiningu með sömu fyrirvörum. Fyrr í vikunni var tilkynnt að fallið hefði verið frá samrunanum.

Share this article