Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Víkingur fer til Ungverjalands í Meistaradeildinni

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 10 mínútumÍÞRÓTTIR Fótbolti Vík­ing­ur fer til Ung­verja­lands í Meist­ara­deild­inni Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson Víkingur fer til Ungverjalands. Mummi Lú Íslandsmeistarar Víkings drógust á móti ungverska meistaraliðinu Györ í 1. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta. Dregið var í dag og verður fyrri leikur liðanna spilaður á Íslandi 7. eða 8. júlí og seinni leikur í Ungverjalandi viku síðar. Liðið sem hefur betur samanlagt í leikjunum tveimur kemst í 2. umferð forkeppni Meistaradeildarinnar en liðið sem tapar fer í 2. umferð forkeppni Evrópudeildarinnar. Fyrir 16 mínútumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Rekinn skömmu fyrir HM en ráðinn á miðju móti Túnis hefur ráðið Herve Renard frá Frakklandi sem landsliðsþjálfara. Hann mun stýra Túnis út heimsmeistaramótið eftir að Túnis rak Sabri Lamouchi í gær eftir 5-1 tap fyrir Svíþjóð í fyrsta leik sínum á mótinu. Fyrir 44 mínútumÍÞRÓTTIR Tennis Will­i­ams­syst­ur munu keppa á Wimbled­on mótinu Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson epa10153730 Serena Williams (L) and Venus Williams (R) of the USA talk during a break in play of their first round women's doubles match against Linda Noskova and Lucie Hradecka of the Czech Republic during the US Open Tennis Championships at the USTA National Tennis Center in in Flushing Meadows, New York, USA, 01 September 2022. The US Open runs from 29 August through 11 September. EPA/CJ GUNTHER EPA / CJ GUNTHER Bandarísku systurnar Serena og Venus Williams munu keppa saman í tvíliðaleik á Wimbledon mótinu í tennis sem hefst í byrjun júlí. Þær fengu boðssæti inn á mótið. Serena er 44 ára og ný snúin aftur til keppni eftir fjögurra ára hlé. Venus er ári eldri og hefur haldið keppni áfram ótrauð. Serena er sjöfaldur sigurvegari Wimbledon mótsins í einliðaleik og Venus fimmfaldur meistari. Enn er óráðið hvort Serena fái boðssæti í einliðaleikinn, en það myndi væntanlega auka athyglina á þessu risamóti til muna. Fyrir 52 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Bláa lónið og Arctic Ad­vent­ur­es vilja sam­ein­ast Forsvarsmenn Bláa lónsins og Arctic Adventures hafa skrifað undir samkomulag um samruna fyrirtækjanna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Fyrir 54 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu G7-ríkin ætla að auka þrýst­ing á Rússa Leiðtogar G7-ríkjanna samþykktu í morgun að auka enn frekar þrýstinginn á Rússa að ljúka stríðinu í Úkraínu. Donald Trump segir að brátt verði aftur settar viðskiptaþvinganir á rússneska olíu. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Við­reisn vill ekki skoða áhrif ESB-að­ild­ar á borg­ina Alexander Kristjánsson Tillögu borgarfulltrúa Samfylkingarinnar um skipan starfshóps til að meta áhrif ESB-aðildar á hagsmuni Reykjavíkurborgar var vísað frá borgarstjórn í dag. Borgarfulltrúar meirihlutans í Reykjavík greiddu allir atkvæði með frávísun, þar með talið fulltrúar Viðreisnar, en flokkurinn hefur öðrum fremur lagt áherslu á ESB-aðild. Í greinargerð með tillögunni segir að opinber umræða um aðild hafi einblínt á áhrif á atvinnuvegi á borð við sjávarútveg og landbúnað. Samantekt vanti á áhrifum á rekstur, efnahag og fjárfestingargetu borgarinnar. Frá fyrsta fundi borgarstjórnar eftir kosningar. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Golf „Ég vil frekar vera hér í vindi en heima í logni“ Nú eru aðeins tveir dagar þar til Gunnlaugur Árni Sveinsson hefur keppni á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi en undirbúningur stendur nú yfir á fullu hjá honum. Þorgeir Logason, fréttaritari RÚV íþrótta í New York hitti Gunnlaug Árna. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR HM í fótbolta 2026 Hvers vegna spila svona margir í bleik­um takka­skóm á HM? Bleikir takkaskór eru allsráðandi á HM í fótbolta í ár. Framleiðendur segja bleika litinn langt frá því að vera tilviljun. Skærir litir auka sjálfstraust og hjálpa leikmönnum að skera sig úr. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Alþingi 800 millj­óna veislu­höld árið 2030 Alþingi verður 1100 ára árið 2030 og er stofnunin þegar farin að leggja drög að veisluhöldum. Skipa á fimm manna framkvæmdanefnd sem hefur fjögur ár til að skipuleggja hátíðarhöldin sem kosta 800 milljónir. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Sak­born­ing­ar í Gufu­nesi óska eftir áheyrn Hæsta­rétt­ar Alexander Kristjánsson Þrír sakborningar í Gufunesmálinu hafa óskað eftir áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar. Mbl.is greindi fyrst frá. Sakborningarnir eru Stefán Blackburn og Lúkas Geir Ingvarsson, sem hlutu báðir sextán ára dóm fyrir manndráp, og kona sem hlaut sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir hlutdeild í frelsissviptingu. Landsréttur mildaði dóm Stefáns og Lúkasar, en þeir höfðu báðir hlotið 17 ár í héraði. Konan hafði hins vegar verið sýknuð í héraði. Fjórði sakborningurinn í málinu er Matthías Björn Erlingsson, sem hlaut tólf ára dóm. Verjandi hans staðfestir við mbl.is að dóminum verði ekki áfrýjað. Lúkas Geir Ingvarsson við fyrirtöku í Landsrétti. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Mega flytja líf­eyr­inn frá ís­lensk­um sjóðum til sjóðs ESB Starfsmenn Flugöryggisstofnunar ESB eiga rétt á að flytja lífeyrinn sinn frá íslenskum sjóðum til lífeyrissjóðs starfsmanna ESB. Íslenska ríkið hefur ekki uppfyllt skyldur sínar gagnvart EES-samningnum með því að heimila það ekki. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Fleiri en einn undir grun lög­reglu vegna inn­brota í bú Fleiri en einn liggja undir grun í tengslum við innbrot í Reykjabúið og svínabú Stjörnugríss, en enginn hefur verið boðaður í skýrslutöku. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Fjarskipti Sumir geta pantað pítsu sím­leið­is en ekki hringt neyð­ar­sím­töl Eldri símtæki nota mörg hver úrelta tækni við að hringja neyðarsímtöl. Neyðarhamur símans gerir það að verkum að þau reyna að skipta yfir á kerfi sem er ekki lengur í notkun á Íslandi. Sumir geta pantað pítsu símleiðis en ekki hringt neyðarsímtöl. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bretland Bonnie Tyler vöknuð úr dái en þungt haldin Söngkonunni Bonnie Tyler var haldið sofandi í rúmlega mánuð eftir að hafa undirgengist bráðaaðgerð á þörmum. Hún liggur enn á gjörgæslu á sjúkrahúsi í Portúgal. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Mannlíf Svona verða há­tíð­ar­höld á 17. júní Þjóðhátíðardagurinn 17. júní verður haldinn um allt land með skrúðgöngum, formlegum athöfnum og fjölbreyttri fjölskyldudagskrá. Viðburðir fara fram í mörgum sveitarfélögum víða um land þar sem hefðbundin hátíðarhöld eru í forgrunni. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Alþingi Orku­mál­in streyma í gegnum þingið Þrír virkjanakostir voru færðir í nýtingarflokk rammaáætlunar í morgun, þar af tveir á Vestfjörðum. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Trump: „Sýr­lend­ing­ar eiga að sjá um Hez­boll­ah“ Donald Trump forseti Bandaríkjanna fór um víðan völl í málefnum Miðausturlanda á G7-fundinum í dag. Hann leggur til að Sýrlendingar sjái um Hezbollah-samtökin í Líbanon og segir Írana aldrei eiga að eignast kjarnorkuvopn. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Svíþjóð Dómur mild­að­ur yfir sænsku „sorp­drottn­ing­unni“ Fariba Vancor, sem rak sorphirðufyrirtækið Think Pink í Svíþjóð, var í morgun dæmd í fimm ára fangelsi í afrýjunardómstól fyrir stórfelld umhverfisspjöll. Héraðsdómur hafði áður dæmt hana í sex ára fangelsi. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Sér­sveit­ar­mað­ur lét hné hvíla á hálsi við hand­töku Nefnd um eftirlit með lögreglu hefur vísað til héraðssaksóknara máli manns sem var handtekinn á Akureyri. Hann kvartaði yfir óþarfa hörku sérsveitarmanns, sem lét hné hvíla á hálsi hans í nokkurn tíma. Lögregla segir hann hafa látið ófriðlega. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Stór­sókn í mennta­mál­um ekkert annað en nið­ur­skurð­ur Félag framhaldsskólakennara hefur miklar áhyggjur af niðurskurði til skólastigsins og formaðurinn segir hann ekki samræmast skilaboðum stjórnvalda um stórsókn í menntamálum. Mikill meirihluti opinberra framhaldsskóla sé rekinn með halla. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Alþingi Inga snúin aftur úr veik­inda­leyfi: „Nú er skvís­an á leið­inni á rík­is­stjórn­ar­fund“ Inga Sæland er snúin aftur til starfa úr veikindaleyfi. Ráðherrann tilkynnti um endurkomu sína í beinu streymi á Facebook, þar sem hún var á leið á ríkisstjórnarfund. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjanesbær Tveir í gæslu­varð­hald vegna al­var­legr­ar lík­ams­árás­ar Einn var fluttur á sjúkrahús með stungusár eftir áflog í Reykjanesbæ aðfaranótt mánudags. Þrír voru handteknir og tveir þeirra hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Ríkið áfrýj­ar dómi í plast­barka­mál­inu Íslenska ríkið hefur ákveðið að áfrýja dómi héraðsdóms í plastbarkamálinu. Ríkið var dæmt bótaskylt vegna háttsemi Tómasar Guðbjartssonar læknis, sem var talinn hafa brotið læknalög og sýnt af sér stórfellt gáleysi. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Svíþjóð Rússar kanna við­bragð sænska hers­ins Grétar Þór Sigurðsson Sænski flugherinn sendi Gripen-orrustuþotur til móts við rússnesku þoturnar. EPA / MARTIN DIVISEK Tvær rússneskar orrustuþotur sem flugu í átt að Svíþjóð á föstudag sneru við aðeins nokkur hundruð metrum áður en þær flugu inn í sænska lofthelgi. Sænski herinn birti í dag nýjar upplýsingar um aðgerðir sínar á föstudag en orrustuþotur flughersins voru sendar til móts við rússnesku þoturnar. Önnur þotan sneri við austur Landsort í sænska skerjafirðinum en hin í grennd Hanö-flóa í Suður-Svíþjóð. Ewa Skoog Haslum, aðgerðastjóri í sænska hernum, segir í samtali við sænska ríkisútvarpið að með flugi orrustuþotanna hafi Rússar ef til vill verið að kanna viðbragð Svía. Hún segir herinn líta flug rússnesku þotanna alvarlega. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Zel­en­sky mættur á G7 fund­inn – reynt að fá Banda­rík­in til að þrýsta á Rússa Stríðið í Úkraínu er fyrsta mál á dagskrá leiðtogafundar G7-ríkjanna. Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu er mættur til fundarins og vill að ríkin þrýsti á Rússa að ljúka stríðinu. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæ

Share this article