Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Györ sigraðir

Read Full Article →

Víkingur tók á móti Ungverjalandsmeisturum Györ í fyrstu umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Leikar stóðu jafnir allt þar til í uppbótartíma seinni hálfleiks þegar Nikolaj Hansen fann sigurmark Víkinga og 1-0 urðu lokatölur. Víkingar komu af krafti inn í leikinn og höfðu góð tök á honum. Áfram héldu Víkingar í seinni hálfleik en uppskáru ekki mark fyrr en í uppbótartíma. Það var Nikolaj Hansen sem fann frákastið inni í teig Györ eftir að Óskar Borgþórsson hafði átt skalla á markið. Liðin mætast aftur í Ungverjalandi á þriðjudag og Víkingar fara með eins marks forskot inn í þá viðureign. Elías meiddur af velli Elías Már Ómarsson hefur verið einn lykilmanna í liði Víkinga og því var það áfall fyrir liðið þegar hann fór mieddur af velli seint í síðari hálfleik. Óttast er að meiðslin séu alvarleg þar sem engin snerting átti sér stað í aðdragandanum. Hann gekk þó sjálfur af velli með stuðningi. Elías er markahæstur í Bestu deildinni með 12 mörk.

Share this article