Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Víkingur sló ungversku meistarana úr leik

Read Full Article →

Víkingur gerði 2-2 jafntefli við ungverska liðið ETO Györ í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í kvöld. Leikið var í Ungverjalandi en Víkingar voru með 1-0 forystu eftir fyrri leik liðanna og eru því komnir áfram í næstu umferð. Daníel Hafsteinsson kom Víkingum yfir með marki eftir hornspyrnu á 34. mínútu. Skömmu síðar braut Óskar Borgþórsson af sér inni í vítateig Víkinga og heimamenn fengu vítaspyrnu. Fyrirliðinn Milán Vitális skoraði af öryggi úr spyrnunni. Györ komst svo yfir þegar Sveinn Gísli Þorkelsson skallaði boltann í eigið net. Njie átti skalla af stuttu færi sem virtist vera á leið fram hjá en Sveini Gísla mistókst að hreinsa. Víkingar jöfnuðu metin eftir frábæra sókn á 54. mínútu. Óskar Borgþórsson átti góðan sprett, fann Helga Guðjónsson út í teig sem náði góðri sendingu út á Daníel Hafsteinsson. Skot hanshafði viðkomu í Gylfa Sigurðssyni og af honum fór boltinn í netið. Víkingar héldu út og eru komnir áfram í næstu umferð þar sem þeir mæta Hapoel Be'er Sheva frá Ísrael. Fyrri leikurinn verður í Víkinni eftir viku.

Share this article