Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Víkingar töpuðu og fara til Thun

Read Full Article →

Karlalið Víkings í fótbolta er úr leik í forkeppni Meistaradeildar Evrópu þetta árið eftir 2-0 tap í Ungverjalandi fyrir Hapoel Be'er Sheva frá Ísrael. Samtals tapaði Víkingur einvíginu 3-2. Víkingar unnu heimaleikinn fyrir rúmri viku 2-1 og voru því í ágætis málum fyrir leik dagsins. Þeir fengu nokkur ágætis færi í fyrri hálfleik en heimamenn voru þó sterkari. Fyrsta markið kom þó ekki fyrr en á 65. mínútu, það skoraði Zahi Ahmad fyrir heimamenn og allt orðið jafnt í einvíginu. Amir Ganah skoraði annað mark Be'er Sheva á 80. mínútu. Víkingar héldu að þeir væru að fá vítaspyrnu í uppbótartíma þegar brotið var á Sveini Margeiri Haukssyni en VAR sneri dómnum við og þar með fór síðasti möguleiki Víkinga til að koma leiknum í framlengingu. Víkingur fer nú í þriðju umferð Evrópudeildarinnar og mætir þar Thun frá Sviss. Fyrri leikurinn verður í Thun 6. ágúst, heimaleikur Víkinga viku síðar. Sigurvegarinn kemst í umspil um sæti í Evrópudeildinni, tapliðið í umspil Sambandsdeildarinnar.

Share this article