Deila Eftir að Haraldur Hárfagri varð einvaldur í Noregi árið 872 hækkaði hann skatta og gjöld og gerði eignarlönd upptæk. Í kjölfarið flúðu um 10-20 þúsund íbúar Noregs, aðallega til Íslands en einnig Færeyja og Orkneyja. Árið 2021, nokkurn veginn nákvæmlega 1.149 árum síðar, unnu Jonas Gahr Støre og Verkamannaflokkur hans sigur í þingkosningum í Noregi. Hin nýja ríkisstjórn stórhækkaði eignaskatt og fjármagnstekjuskatt á arð og söluhagnað hlutabréfa einstaklinga. Ríkisstjórn Ernu Solberg, sem sat árin 2013–2021, hafði tekist að stöðva flótta eignafólks frá Noregi sem hafði staðið yfir lengi. Eftir að Støre komst til valda árið 2021 jókst flóttinn að nýju. Eignaskatturinn nær í dag til mun stærri hluta millistéttarinnar. Um 12,5% Norðmanna greiða eignaskatt í ár, eða tæplega 20% þeirra sem greiða einnig tekjuskatt. Til að lesa meira Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér. Verð frá 6.295 kr. á mánuði Kaupa áskrift