Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Skattaglaðir forystumenn Verkamannaflokks eru stóreignamenn

Read Full Article →

Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs og formaður Verkamannaflokksins, er einn ríkasti stjórnmálamaður landsins. Auðinn má að stórum hluta rekja til móðurafa hans, Johannes Gahr, sem byggði upp ofnaframleiðandann Jøtul. Þetta er meðal þess sem fjallað er um í Frjálsri verslun í tengslum við miklar skattahækkanir í Noregi, eftir að Støre varð forsætisráðherra árið 2021. Sjá einnig Flótti frá Noregi eftir skattahækkanir Støre-stjórnarinnar Eignir Støres liggja í dag að mestu í fjárfestingarfélaginu Femstø AS, sem var með bókfært eigið fé upp á 836 milljónir íslenskra króna í árslok 2024. Norska viðskiptablaðið Finansavisen metur raunvirði eigna hans hins vegar á um 1,75 milljarða króna, að meðtöldu húsi og sumarhúsi. Í ágúst 2017 greindi Dagens Næringsliv frá því að Støre hefði fjárfest í sjóði breska sjóðstýringarfyrirtækisins Egerton Capital, sem meðal annars fjárfesti í franska fyrirtækinu Safran, framleiðanda íhluta í kjarnorkuvopn. Norska dagblaðið VG fylgdi í kjölfarið og greindi frá því að móðursjóður Egerton væri skráður á skattaskjólinu Caymaneyjum. Støre hafði árið áður, í kjölfar Panama-skjalanna árið 2016, talað fyrir hertum siðareglum olíusjóðsins norska og gegn skattaskjólum. Margir telja að málið hafi kostað Verkamannaflokkinn sigurinn í kosningunum 2017, þar sem Erna Solberg og Høyre héldu velli þvert á spár. Sjá einnig Frá Haraldi Hárfagra til Jonasar Gahr Støre Varaformaðurinn Jan Christian Vestre er einnig afar auðugur. Hann tók ungur við fjölskyldufyrirtækinu Vestre AS og á í dag 70% hlut í félaginu, stærsta framleiðanda útihúsgagna á Norðurlöndum. Samkvæmt skattaskrá nam skattstofn hans 1,4 milljörðum króna árið 2024 en hlutur hans í Vestre er talinn miklu verðmætari en skattstofninn bendir til. Nánar er fjallað um málið í veglegu tímariti Frjálsrar verslunar, sem kom út á miðvikudaginn. Hægt er að kaupa ritið hér en áskrifendur geta lesið það hér .

Share this article