Frumkvöðullinn Freyr Þormóðsson er meðal stofnenda bandaríska geimrannsóknafyrirtækisins Exploration Laboratories ( ExLabs ) sem þróar ómönnuð geimför ætluð til rannsókna á loftsteinum. Fyrirtækið, sem var stofnað árið 2022, á m.a. í samstarfi við Geimferðastofnun Bandaríkjanna (NASA) og Geimher Bandaríkjanna. Freyr gegnir bæði stöðu fjármálastjóra og stjórnarformanns hjá ExLabs, sem er með tvö langtímamarkmið. Annars vegar vill fyrirtækið stunda rannsóknir á loftsteinum og þróa tækni til að sporna gegn því að svokallaðir borgarbanar lendi á jörðu. Hins vegar horfir fyrirtækið til námugraftar úti í geimi. ExLabs, sem er staðsett á Long Beach í Kaliforníu, undirbýr nú að senda sitt fyrsta geimfar út í geim á árinu 2028 með það að markmiði að greina loftsteininn Apophis sem mun fljúga rétt framhjá jörðu þann 13. apríl 2029. Hraðar tækniframfarir Freyr segir hugmyndina á bak við ExLabs hafa sprottið upp úr því að stofnendateymið og ráðgjafar fyrirtækisins, sem telja m.a. nokkra af fremstu sérfræðingum á sínu sviði í geimiðnaðinum, ákváðu að kortleggja helstu tækifæri sem yrðu möguleg í iðnaðinum þegar ferðakostnaður út í geim héldi áfram að lækka vegna tækniframfara, m.a. fyrir tilstuðlan SpaceX. „Kostnaðurinn við að bera eitt kíló af yfirborði jarðar upp í geim féll hundraðfalt á árunum 1980-2020. Ef maður ber þetta svo saman við Apollo-tímabilið og tímabil geimskutluáætlunarinnar (e. Space Shuttle program) féll kostnaðurinn sirka tífalt í hvert skipti. Þetta skapar grundvöll fyrir því að hægt er að gera fleiri og stærri hluti á miklu ódýrari og hraðari en áður var mögulegt, hátt úti í geimi og þar af leiðandi á mun stærri skala,“ segir Freyr. Á myndinni má sjá líkan af geimfari sem er hannað til að elta niður lofstein. © Aðsend mynd (AÐSEND) Hann bendir á að kostnaður stærstu geimvísindastofnana heims, þar á meðal NASA, ESA og JAXA, við að byggja geimför og leiðangra sé gjarnan hundruð milljóna ef ekki milljarða dala. Til að mynda sé áætlaður kostnaður leiðangurs geimfarsins Europea Clipper, á vegum JPL-tilraunastofu NASA, til Evrópu, fylgitungls Júpíters, kominn yfir fimm milljarða dala. Fréttin er hluti af ítarlegu viðtali við Frey í tímariti Frjálsrar verslunar sem kom út 17. júní. Áskrifendur geta nálgast greinina í heild sinni hér og annað efni úr tímaritinu hér .