Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Úr kvik­mynda­geiranum í geimiðnaðinn

Read Full Article →

Í nýju tímariti Frjálsrar verslunar er að finna ítarlegt viðtal við Frey Þormóðsson, fjármálastjóra og stjórnarformann Exploration Laboratories (ExLabs) um starfsemi bandaríska geimrannsóknafyrirtækisins sem sem þróar ómönnuð geimför ætluð til rannsókna á loftsteinum. Freyr hefur verið búsettur í Bandaríkjunum frá því að hann fór 25 ára í framhaldsnám í kvikmyndaframleiðslu í San Francisco og síðar MBA-nám við University of Phoenix. Bakgrunnur hans er því í kvikmyndageiranum, þar sem hann hóf feril sinn sem dreifingaraðili kvikmynda með fyrirtækinu Vanguard Cinema sem hann seldi árið 2012. Hann stofnaði í kjölfarið tæknifyrirtæki sem þjónustaði streymisveitur á borð við Netflix við gagnaflutninga, t.d. til að styðja við áhorf í gegnum snjallsíma, fartölvur og önnur tæki. „Fyrirtækið breyttist því í raun yfir í tæknifyrirtæki sem hjálpaði streymisveitum að senda mikið magn af upplýsingum hratt og örugglega í réttu sniði. Ég hafði verið þátttakandi í að búa til staðla hvað þetta varðar árin 2000-2015, og seldi síðan tæknifyrirtækið árum áður en við stofnuðum ExLabs.“ Auk Freys er einn úr stofnendateymi Exlabs með bakgrunn úr fjölmiðageiranum en aðrir stofnendur fyrirtækisins eru geimferðaverkfræðingar. Hann segir samsetningu hópsins góða hvað varðar geimtækni, fjármögnun og rekstrarþekkingu. Vilja endurvekja áhuga á geimnum Reynsla Freys kemur að góðum notum, en ExLabs ætlar að nýta tækifærið með Apophis-geimferðinni og öðrum geimferðum í framtíðinni til þess að ná til almennings með dreifingu myndefnis t.d. í gegnum samfélagsmiðla. Geimfarið mun hafa í för með sér 8K IMAX-tökuvél sem ExLabs mun byggja í samstarfi við IMAX og aðra aðila, og verður nýtt í streymi á netinu, heimildarmyndir fyrir IMAX og sölu á hrámiðlaefni til lengri tíma. „Við viljum reyna að endurvekja þann áhuga sem fólk hafði á geimferðum á sjöunda og áttunda áratugnum, meðal annars í kringum fyrstu tungllendinguna. Ég held að við höfum misst ákveðið tækifæri til að kynna fólki allt það sem hægt er að gera í geimnum, hvað framtíðin ber í skauti sér og hversu jákvætt það er fyrir okkur öll. Þetta er ópólitískt málefni sem snýst um framtíð mannkynsins í heild sinni. Þess vegna sjáum við jafnvel samstarf á þessu sviði á milli ríkja sem vinna að öðru leyti ekkert saman.“ Hann nefnir í því dæmi að þyngdarleysi, eða nánar tiltekið örþyngd úti í geimi, hafi mikla kosti við lyfjaþróun og örgjörva, svo að örfá dæmi séu tekin. Einnig sé nú verið að framleiða smærri og öflugri hálfleiðara í þeim aðstæðum. Til viðbótar má nefna hugmyndir stórra tæknifyrirtækja um að halda úti gagnaverum úti í geimi til að nýta stöðuga sólarorku og í senn kælingu í geimnum. Í dag starfa um tuttugu manns hjá ExLabs í það heila, sem starfar í ríflega 3.000 fermetra flugskýli innan öryggishliða flugvallarins í Long Beach, auk þess sem félagið vinnur með hópi ráðgjafa. Freyr segir að í hópnum sé m.a. vísindamaður sem leiddi báða leiðangrana þar sem lent var á loftsteini, grafið var í hann og sýni skilað aftur til jarðar, Hayabusa 2 og Osiris-Rex. Einn hönnuður SLS-eldflaugarinnar sem flutti Artemis II upp í geim og í kringum tunglið er einn meðstofnenda ExLabs. Auk þess hefur geimfarshönnuður ExLabs hannað yfir 200 gervihnetti sem eru á sporbaug um jörðu. Fréttin er hluti af ítarlegu viðtali við Frey í tímariti Frjálsrar verslunar . Áskrifendur geta lesið greinina í heild sinni hér . Hægt er að kaupa ritið hér .

Share this article