- What: Healthcare company acquires medical imaging firm
- Impact: Affects healthcare services in Iceland
Ósar – lífæð heilbrigðis hf. og Röntgen Domus hafa undirritað samkomulag um að Röntgen Domus verði hluti af Ósa-samstæðunni. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu en þar segir að aðkoma Ósa veiti aukið svigrúm til frekari þróunar og uppbyggingar á Röntgen Domus. Í kjölfar þessara viðskipta munu Ósar styðja Röntgen Domus með innviðum, stoðþjónustu og rekstrarþekkingu. „Röntgen Domus býr yfir mikilli sérþekkingu og veitir samfélaginu dýrmæta þjónustu. Hlutverk Ósa verður að styrkja rekstrarlegan grunn starfseminnar og skapa fyrirtækinu forsendur til að dafna til framtíðar,“ segir Hörður Þórhallsson, forstjóri Ósa. Sjá einnig 23 milljarða velta Ósa Samkomulagið er gert með fyrirvara um niðurstöðu áreiðanleikakönnunar og samþykki Samkeppniseftirlitsins. „Sem bakhjarl gera Ósar okkur kleift að einblína á faglega sérþekkingu okkar. Við sjáum tækifæri til að þróa þjónustuna áfram og efla okkur enn frekar sem eftirsóknarverðan vinnustað,“ segir Sólveig Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Röntgen Domus.