Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

SKE heimilar kaup Kemi á Fálkanum Ísmar

  • What: Merger between Kemi and Fálkinn Ísmar
  • Impact: Business restructuring
Read Full Article →

Samkeppniseftirlitið hefur heimilað kaup Kemi á Fálkanum Ísmar en félögin undirrituðu samkomulag í mars á þessu ári um sameiningu á rekstri félaganna. Öllum fyrirvörum hefur nú verið aflétt og hefur því samkomulagið öðlast gildi. Í tilkynningu segir að frá og með deginum í dag verði rekstur Fálkans Ísmar áfram í óbreyttri mynd sem dótturfélag Kemi ehf. Samanlögð velta félaganna á árinu 2025 var tæpir sex milljarðar og nam samanlögð EBITDA tæpum 500 milljónum króna. Félögin segja að breytingin geti leitt til söluaukningar og aukið þjónustu við núverandi viðskiptavini. Sjá einnig Kemi og Fálkinn Ísmar sameinast Samhliða sameiningunni mun Hermann Guðmundsson taka við sem framkvæmdastjóri félagsins og mun auk þess stýra áfram Kemi. Gunnar Sverrisson, sem verið hefur framkvæmdastjóri Fálkans Ísmar, mun aðstoða nýja eigendur fyrst um sinn. „Markmið og tilgangur þessara breytinga er að setja saman stærri einingu undir einni yfirstjórn sem hefði meiri burði til að keppa við fyrirtæki á þeim mörkuðum sem félögin starfa á. Að sameina tvö góð fyrirtæki í traustum rekstri skapar tækifæri til að bæta vöruúrval og þjónustu við viðskiptavini um land allt,“ segir Hermann. Samanlagður fjöldi starfsmanna eftir þessa sameiningu er rúmlega 100 og nema vörubirgðir félaganna alls 1,4 milljörðum króna. Eigendur Kemi ehf., eftir þessi viðskipti, eru Sjávarsýn ehf., Hermann Guðmundsson og Freyja fjárfestingasjóður.

Share this article