- What: Hugo Boss urges shareholders to reject a takeover bid
- Impact: Shareholders are being asked to reject a bid from Frasers Group
Stjórn Hugo Boss hvatti hluthafa sína í morgun til að hafna valfrjálsu yfirtökutilboði breska fyrirtækisins Frasers Group, sem er í meirihlutaeigu breska aðkýfingsins Mike Ashley. Þýski tískurisinn segir tilboðið, sem hljóðar upp á 38 evrur á hlut, ekki nægilega gott. Tilboðsverðið var aðeins 4,3% yfir dagslokagengi hlutabréfa félagsins síðasta viðskiptadaginn áður en tilboðið var lagt fram. Að mati Hugo Boss endurspeglar það hvorki raunvirði félagsins né framtíðarmöguleika þess. Gengi félagsins stendur í 37,9 evrum á hlut þegar fréttin er skrifuð. Sjá einnig Ashley reynir að kaupa Hugo Boss Frasers á um 26% hlut í Hugo Boss og lagði tilboðið fram til að stækka eignarhlut sinn í þýska fyrirtækinu og eignast yfir 30%. Samkvæmt þýskum lögum myndast yfirtökuskylda þegar hluthafi eignast yfir 30% eða meira af atkvæðarétti viðkomandi félags. Hugo Boss hefur glímt við samdrátt í sölu og hagnaði og Daniel Grieder, forstjóri félagsins, vinnu að því að snúa rekstrinum við. Grieder, sem tók við stjórnartaumunum fyrir fimm árum, hafði stefnt að því að gera Hugo Boss að leiðandi vörumerki á heimsvísu. Minni eftirspurn í kjölfar Covid-faraldursins settu þó strik í reikninginn í útrásaráformum hans, að því er segir í frétt Reuters . Hugo Boss hefur ekki náð markmiðum sem Grieder setti um að ná sömu framlegð og fyrir faraldurinn. Sala félagsins dróst saman um 1% í fyrra, sem rakið var til minni eftirspurnar í Bretlandi og Kína.