Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Af hverju eru Bandaríkjamenn nú þegar „heimsmeistarar“?

Read Full Article →

Bandaríkin urðu í gærkvöld annað liðið á yfirstandandi heimsmeistaramóti í fótbolta til að verða „heimsmeistarar“. Liðið vann Ástralíu 2-0 og er nú í afar góðri stöðu í riðli sínum. 32-liða úrslitin bíða og þaðan eru bara 450 mínútur að heimsmeistaratitli ef allt gengur upp. Hins vegar fékk liðið óopinbera heimsmeistaratitiinn í gær. Á ensku heitir keppnin Unofficial Football World Championships og er eins og allt gott í þessum heimi hugarfóstur nörda. Líkt og hnefaleikar Keppnin snýst í raun um að halda utan um alþjóðlegan fótbolta á óformlegan hátt. Heimsmeistaratitlinum svipar til þess hvernig haldið er utan um titla í hnefaleikum. Aðeins eitt lið getur verið heimsmeistari og strax og annað lið vinnur núverandi heimsmeistara skiptir titilinn um hendur. Tyrkir komu inn í mótið sem ríkjandi „heimsmeistarar“ en misstu titilinn strax í fyrsta leik gegn Ástralíu. Titilinn getur verið eins og heit kartafla á stórmótum og eru heimamenn í Bandaríkjunum strax búnir að hrifsa titilinn til sín. Verst að það veit bara nánast enginn af því. Næsta vörn titilsins er gegn Tyrkjum 25. júní og geta því Tyrkir endurheimt „heimsmeistaratitilinn“. Frá 1873 - ótrúlegustu lið unnið Titilinn hefur farið landa á milli frá 1873, þegar England vann Skotland 4-2 í fyrsta landsleik sögunnar. Ef það er jafntefli heldur núverandi heimsmeistari titlinum. Keppnin var í raun fundin upp árið 2002 af nokkrum enskum tölfræðinördum. Alþjóðaknattspyrnusambandið FIFA hefur aldrei gefið keppninni gaum. Skotar eru besta lið sögunnar með 86 titla en liðið hefur reyndar ekki unnið frá 2007. Ótrúlegustu lið hafa orðið heimsmeistarar, svo sem Síerra Leone, Norður-Kórea og þá er Simbabve líklega það lið sem hefur náð bestum árangri fram yfir getu. Simbabvemenn hafa sjö sinnum lyft „heimsmeistaratitlinum“ í ellefu tilraunum, síðast árið 2005. Topp 10 í sögunni Þrátt fyrir að vera sigursælasta lið sögunnar hafa Skotar mátt þola 19 ár af sársauka. Bandaríkjamenn hafa unnið þrisvar í átta tilraunum. Norður-Írland eru arfaslakur í úrslitaleikjum en liðið hefur einungis unnið fimm sinnum í 64 tilraunum. Ísland hefur aldrei leikið um titilinn. Skotland - 149 leikir - 86 unnir - Síðast heimsmeistarar: 28. mars 2007 England - 146 leikir - 73 unnir - Síðast heimsmeistarar: 20. júní 2000 Argentína - 116 leikir - 72 unnir - Síðast heimsmeistarar: 16. nóvember 2023 Holland - 96 leikir - 58 unnir - Síðast heimsmeistarar: 7. september 2020 Ítalía - 79 leikir - 45 unnir - Síðast heimsmeistarar: 6. október 2021 Rússland - 64 leikir - 41 unninn - Síðast heimsmeistarar: 23. febrúar 2000 Brasilía - 72 leikir - 38 unnir - Síðast heimsmeistarar: 17. júní 2015 Frakkland - 67 leikir - 33 unnir - Síðast heimsmeistarar: 3. júní 2022 Þýskaland - 69 leikir - 31 unninn - Síðast heimsmeistarar: 6. september 2019 Svíþjóð - 50 leikir - 29 unnir - Síðast heimsmeistarar: 8. september 2025 Einu sinni orðið „heimsmeistarar“ Curaçao, Ísrael, Sierra Leone, Suður-Kórea, Venesúela

Share this article