Bandaríkjakonur eru heimsmeistarar í körfubolta eftir 97-79 sigur gegn Frakklandi í úrslitaleik. Þær frönsku leiddu eftir fyrri hálfleik en Bandaríkin völtuðu yfir þær frönsku í þriðja leikhluta og sigldu að lokum öruggum sigri heim. Frakkar leiddu með þremur stigum eftir fyrsta leikhluta, 17-20. Frakkar leiddu enn í hálfleik, með tveimur stigum, 43-45. Bandaríkjakonur settu tóninn strax í upphafi þriðja leikhluta og skoruðu fyrstu fjögur stigin. Þá var ekki aftur snúið og Bandaríkin unnu leikhlutann 30-12. Staðan var því 73-57 þegar haldið var í fjórða leikhluta. Bandaríkin unnu hann 24-22 og sigurinn því að lokum öruggur, en það munaði sautján stigum á liðunum í lokin. Breanna Stewart var stigahæst hjá Bandaríkjunum með 22 stig. Hún bætti við 10 fráköstum og fjórum stoðsendingum. Dominique Malonga og Gabby Williams leiddu stigaskorun Frakka með 21 og 20 stig. Engir aðrir Frakkar voru með meira en átta stig. Malonga bætti við sex fráköstum og Williams sjö stoðsendingum. Besti árangur í sögu Frakka - fimmta sinn í röð hjá Bandaríkjunum Silfur er besti árangur Frakklands í sögunni, en áður höfðu Frakkar bara náð bronsi á fyrsta heimsmeistaramótinu árið 1953. Þetta er í fimmta sinn í röð sem Bandaríkin vinna HM og tólfta skiptið í heildina. Spánn tók bronsið Fyrr í dag unnu Spánverjar heimakonur í Þýskalandi í bronsleiknum. Þær spænsku unnu afar öruggan 23 stiga sigur, 81-58. Iyana Martin fór fyrir Spánverjum með 22 stig, fjögur fráköst og níu stoðsendingar. Alexis Peterson og Nyara Sabally leiddu stigaskorun Þjóðverja með 13 stig hvor. Spánn hefur einu sinni unnið silfur og þetta er í fimmta skiptið sem þær taka brons. Ekkert annað lið hefur oftar unnið brons. Þýskaland hefur aldrei komist á verðlaunapall á HM.