Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Túnisar dottnir út af HM

Read Full Article →

Japan vann Túnis með fjórum mörkum gegn engu í leik liðanna í F-riðli sem fram fór í nótt á Monterrey-leikvellinum í Mexíkó. Daichi Kamada skoraði fyrsta markið strax á 4. mínútu leiksins og Ayase Ueda átti svo næsta mark á 31. mínútu. Eftir hálfleik skoraði Junya Ito á 69. mínútu og Ueda bætti um betur með öðru marki á 83. mínútu. Eftir þessi úrslit er Túnis dottið út af heimsmeistaramótinu í fótbolta, þrátt fyrir að liðið eigi einn leik til góða á móti Hollandi á fimmtudaginn. Japanar mæta svo Svíum einnig á fimmtudag. Holland og Japan eru efst í F-riðli, bæði liðin eru með fjögur stig.

Share this article