Þrjú lið úr F-riðli komast áfram í útsláttarkeppnina á heimsmeistaramótinu í fótbolta. Þetta varð ljóst í nótt eftir að flautað var til leiksloka í síðustu umferð riðilsins. Hollendingar áttu ekki í neinum vandræðum með lið Túnis. Þeir komust yfir á 3. mínútu eftir sjálfsmark Ellyes Skhiri. Rétt um fjórum mínútum síðar bætti Brian Brobbey öðru marki við fyrir Hollendinga. Í seinni hálfleik minnkaði Hazem Mastouri muninn fyrir Túnis með marki á 54. mínútu. Jan Paul van Hecke gerði svo út um leikinn fyrir Hollendinga með þriðja marki þeirra á 62. mínútu. Lokatölur 3-1 og Hollendingar enduðu efstir í riðlinum með sjö stig. Svíar í þriðja sæti riðilsins en komnir áfram Í hinum leik riðilsins mættust Svíar og Japanar. Það var öllu minni hasar í þeim leik og enn var markalaust í hálfleik. Daizen Maeda kom Japönum yfir á 56. mínútu. Anthony Elanga jafnaði metin á 62. mínútu. Með jafnteflinu tryggðu Japanir sér annað sæti riðilsins. Svíar eru sem stendur það lið í þriðja sæti riðlakeppninnar sem hefur náð besta árangrinum. Þeir eru búnir að tryggja sér farmiða í útsláttarkeppni mótsins. Klukkan 2 hefjast úrslit í D-riðli með tveimur leikjum. Gestgjafarnir í liði Bandaríkjanna mæta Tyrkjum í öðrum leiknum en í hinum eigast Ástralía og Paragvæ við. Leikirnir eru sýndir í beinni útsendingu á RÚV og RÚV tvö.