Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Japanir neituðu að gefast upp

Read Full Article →

Japan og Hollendingar gerðu 2-2 jafntefli í fyrsta leik F riðils á HM karla í fótbolta. Markalaust var í hálfleik en Hollendingar komust yfir í tvígang í seinni hálfleik. Japanir gáfust aldrei upp og jöfnuðu metin tvisvar. Hér má sjá mörkin. Bæði lið geta gengið ágætlega sátt frá borði en Hollendingar eru þó eflaust ögn ósáttari með niðurstöðuna, þar sem Japan jafnaði undir lok leiks. Pressan var það mikil að eitthvað varð undan að láta. Það er eins og liðin sætti sig frekar við stigið í riðlakeppni þar sem þrjú lið fara áfram. Tapið setur þau í verri stöðu. Við sáum svipaða þróun í leik Brasilíu og Marokkó kvöldið áður. Fyrri hálfleikur var afar bragðdaufur en það kviknaði líf í leiknum í seinni hálfleik. Virgil átti frábært skallamark í upphafi hálfleiks. Nakamura jafnaði með skoti úr nær vonlausri stöðu í gegnum þvögu. Summerville kom svo Hollendingum aftur yfir með skoti í stöngina og inn. Japanir sóttu án afláts og fastur skalli fór af Kamada og í netið. Liðin eru nú jöfn að stigum með eitt stig og Svíþjóð og Túnis mætast klukkan 02:00 í nótt.

Share this article